Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Síða 145

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Síða 145
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2014 · 4 145 skoðað er það ekki svo. Höfundur notar myndirnar sem heimildir á svipaðan hátt og fléttar frásögn sína með þeim. Þær eru endursagðar, líkt og aðrar heim­ ildir. Ljósmyndum er umbreytt í texta. Gott dæmi er mynd sem er merkt: „Óli á Riverside Drive.“9 Myndin ein og sér er skemmtileg, Óli heldur brosandi á brauðpoka, sem hallar í átt að mynda­ vélinni. Bak við hann eru dúfur á beit í almenningsgarði. En höfundur notar þessa heimild til að skapa litla senu og sýna þar með líf fjölskyldunnar í Banda­ ríkjunum: Garðurinn er víða lagður stéttum og stíg­ um og þar safnast dúfurnar saman, og allt í kringum Óla sem stendur þar með brauð í poka. Hann er í ullarfrakka utan yfir stuttbuxnadressinu, hnésokkum og leðurskóm með spennu um ökklann. Þegar hann hefur tæmt úr pokanum sest hann upp á þríhjólið sitt, teygir sig niður eftir akarni sem liggur á stétt­ inni, og kastar varlega í átt til íkornans áður en hann tekur stefnuna niður eftir, og Sigrún á hæla honum undir nöktum álminum.10 En einnig er hægt að líta á bókina sem myndaalbúm. Ef ég taldi rétt þá eru 60 ljósmyndir í bókinni, sem að meðaltali er meira en ein á hverjar þrjár síður af megintexta. Og þá eru ótaldar myndirn­ ar á forsíðu og bakkápu. Gamlar ljós­ myndir hafa alltaf yfir sér trega. Mynd­ irnar varðveita eitt einasta augnablik ævi. Sum lífsskeiðin eru löng, önnur stutt. Þegar um myndir er að ræða sem eru meira en sjö áratuga gamlar, má gera ráð fyrir að flestar manneskjur á þeim séu dánar, allavega allar þær sem eru komnar af táningsaldri. Það er ekki auðvelt fyrir áhorfendur að virða fyrir sér myndir af fólki sem lést voveiflega. Hvað þá börnum. Það er ekki hægt að ná lifandi manneskjum til baka úr djúp­ inu, en það er hægt að skapa eftirmynd­ ir. Að renna yfir myndirnar í bókinni eftir að hafa lesið hana er eins og að skoða albúm af fólki sem maður þekkir vel. Sigrún, Friðgeir og Óli ná að kvikna til lífs í huga lesenda. En með því að gera látnar manneskjur að lifandi sögu­ persónum þá þurfa lesendur að takast á við sorg sem þau hefðu ekki annars upplifað. Það er útrás í því að hrærast með örlögum skáldsagnapersónu, en það er blendnara þegar feigðin kallar að fólki af holdi og blóði. Eða svo ég vitni í lokaorð frásagnarinnar: „Og myrkrið undir yfirborði sjávar sem verður svart­ ara við hvert orð sem reynir að lýsa því sem þar hefur gerst.“ Eftirmáli Sigrún og Friðgeir – Ferðasaga er bók án eftirmála. Henni lýkur með dauða aðalpersónanna. Það er vel, frásagnar­ lokin gætu ekki verið sterkari. Ýmsir lausir endar eru þó á frásögninni, sem er eðlilegt þegar ramminn er jafn þröngur. Fólk dettur inn og út úr lífi annarra. Sumt verður að óljósri minn­ ingu meðan sum líf tvinnast saman. Stundum verða manneskjur umhugs­ unar verðar langt umfram samfylgdar­ tíma þeirra. Tvær manneskjur í bókinni sitja eftir. Sigurður Briem póstmeistari, faðir Sig­ rúnar, hefur verið að setja saman sjálfs­ ævisögu sem heitir Minningar. Hún kom út um svipað leyti og dóttir hans fórst. Sigurður áætlaði góðan hagnað af útgáfunni, 922,50 dollara, sem var ansi rífleg fjárhæð í þá daga.11 Það er eitt­ hvað broslegt við það að hugsa um póst­ meistara sem býst við að endurminning­ ar hans nái metsölu. Það gæti svo sem alveg hafa farið svo. Bókin upplýsir ekki um það. En þessi tenging mín sem rit­ höfundar við annan rithöfund leyfði mér að upplifa eftirmynd af sorg hans. Hin manneskjan er Marjorie, unga
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.