Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Side 26
Á s d í s R . M a g n ú s d ó t t i r
26 TMM 2018 · 3
Það er ekki fyrr en hún vaknar og sér að draumaprinsinn liggur við hlið
hennar í stað Dýrsins að henni verður ljóst að prinsinn og Dýrið er einn og
sami maðurinn; hún kyssir hann ótal sinnum, enda voru þau ein og hann
eiginmaður hennar.
Í sögu sinni fer Mme de Villeneuve aldrei yfir hin mikilvægu mörk
velsæmisins sem réð för í samkvæmislífi salónanna. Ástin var vinsælt
umfjöllunarefni í skáldsögum tímabilsins og útfærð á ýmsa vegu. Fræg er
til dæmis skáldsagan Clélie eftir Mlle de Scudéry sem kom út á árunum
1654–1660 í 10 bindum. Í fyrsta bindi sögunnar var að finna landakort,
sem upphaflega var hugsað sem samkvæmisleikur, af hinni frægu allegoríu
Ástarinnar sem sett var upp sem ríki eða landsvæði sem ótal leiðir lágu um;
elskhuginn þurfti að fikra sig áfram, rétta leið, til að ná settu marki og sú
ferð var ekki hættulaus. Hrifning, virðing og þakklæti eru þar meðal helstu
þáttanna sem geta tendrað ást í brjósti hinnar elskuðu; í Fríðu og Dýrinu
hrífst Fríða af hinum ókunna draumaprinsi og virðir hann en hún er þakk-
lát Dýrinu, sem hún getur ekki hrifist af en sem sýnir henni ítrekað hversu
mikils virði hún er honum.21 Auk þess gefur Mme de Villeneuve ýmislegt í
skyn við lesendur sína strax fyrsta kvöld Fríðu í höllinni eftir brottför föður
hennar með því að setja bolla af heitu súkkulaði við rúmið.
Súkkulaði var vinsælt meðal aðalsins alveg frá því að það kom fyrst inn
fyrir frönsku landamærin frá Spáni snemma á 17. öld og sumar hefðarkonur
drukku daglega sinn kakóbolla og stundum meira en það. Sjálfur Loðvík 15.
var líka hrifinn af heitu súkkulaði enda var það talið allra meina bót. Ekki
síst var talið að súkkulaði hefði ástaraukandi áhrif og hentaði því vel til að
kveikja þrá og löngun þegar eitthvað vantaði upp á. Uppskrift konungs, sem
á að hafa hitað sitt eigið súkkulaði þegar þannig lá á honum, er löngu orðin
fræg og er á þessa leið:
Setjið jafnmikið af súkkulaðiplötum og bollum af vatni í kaffikönnu og látið sjóða
á hægum hita; þegar bera á súkkulaðið fram skal setja eina eggjarauðu fyrir hverja
fjóra bolla og hræra í með sleif yfir hægum eldi án þess að láta suðuna koma upp. Ef
þetta er gert daginn áður er drykkurinn betri: þeir sem drekka daglega skilja eftir
lögg fyrir súkkulaði næsta dags. Í stað eggjarauðu má setja þeytta eggjahvítu eftir að
hafa fleytt fyrstu froðuna af; hrærið hvítuna út í dálitlu súkkulaði úr kaffikönnunni,
svo er því hellt aftur í könnuna og gert eins og með eggjarauðuna.22
Það er því engin tilviljun að Mme de Villeneuve kemur bolla af heitu súkku-
laði fyrir á náttborði Fríðu sem svífur inn í svefninn þar sem draumaprinsinn
er skammt undan og býr hana undir ástina sem bíður hennar einnig í heimi
vökunnar. Höfundurinn leikur sér með hið tvöfalda líf sögupersónanna bæði
í draumaheiminum en líka í hinum fjölmörgu krókum og kimum hallarinnar
sem endurspegla í senn flókinn heim skáldsögunnar á ritunartíma verksins
og heim salónanna sem sagan var ætluð. Árið 1742 var sagan sviðsett í París
en þegar fram liðu stundir og áhrif upplýsingarinnar urðu meiri má ætla að
TMM_3_2018.indd 26 23.8.2018 14:19