Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Side 85

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Side 85
„ M a n n k y n s s a g a n s e m s ö g u l e g s k á l d s a g a“ TMM 2018 · 3 85 hafa verið settar fram ýmsar skýringar á honum. Það hefur til að mynda verið sagt að í bókmenntagreininni leynist uppreisnarfrjókorn sem höfundar geti ræktað; sömuleiðis hefur verið bent á sérstöðu lesenda sem fáist við hvort- tveggja í senn framandgervingu og hið vottfesta.36 En einnig hefur verið rætt um sögulegar aðstæður, bæði þjóðlegar og alþjóðlegar. Í kanadískri bók frá síðasta áratug er meðal annars nefnt að kanadísk saga hafi verið vanrækt vegna nýlenduhyggju og að menn hafi í auknum mæli viljað bregðast við þröngri sýn á hana. Spurningarmerki sem sett hafi verið við þekkingarfræði og hugmyndafræði sagnfræðinnar hafi líka haft sín áhrif. Sama sé að segja um eftirþjóðlegu (e. postnational) menninguna sem hafi sennilega lagt rækt við sögu þjóðarinnar sem einhvers konar uppbót fyrir ástandið á tímum alþjóðavæðingar. Loks sé ekki loku fyrir það skotið að ýmsir höfundar skrifi sögulegar skáldsögur af því einu að þær njóta vinsælda.37 Ég held að atriði af þessu tagi geti verið leiðarhnoða til að greina framgang íslensks sögulegs skáldskapar. Í sömu mund grunar mig að einhverju skipti að fólk á æ erfiðara með að ná yfirsýn yfir samtímann og leggja hann niður fyrir sér. Fyrir vikið leiti það til fortíðarinnar sem þegar hefur verið greind og gera má upp við; svo ekki sé minnst á öryggið sem hið kunnuglega í henni kann að veita. IV Árið 2017 kom út íslensk saga sem sett er niður á 18. öld – þó sumt í frásögn hennar kunni að byggja á upplýsingum um aðrar aldir. Á titilsíðu er hún nefnd skáldsaga, sennilega af því að aðalpersónurnar eru hugsmíð höfundar. Útgefandinn auglýsir hana þó sem sögulega skáldsögu enda fer ekki milli mála að hún byggir á margvíslegum heimildum. Í henni bregður líka fyrir sögulegum persónum eins og þeim merkisklerki Þórði í Reykjadal en sér- stæðar stólræður hans og bæntekningar hafa lifað á vörum Hreppamanna – og eflaust Tungnamanna líka – allt fram á þennan dag. Hér er um að ræða sögu Bjarna Harðarsonar, Í skugga drottins. Hún er einkar forvitnileg sem ný- söguleg skáldsaga er gerir upp við hugmyndir um þekktan sögustað, þ.e.a.s. Skálholtsstað, en slíkir staðir eiga allajafna sjálfir drjúgan þátt í að skapa hina viðteknu mynd af sögunni. Aðalpersónur verksins eru leiguliðar Skál- holts, ekki ráðamenn á staðnum svo að undir eru ekki stóratburðir Íslands- sögunnar sem ráðast á biskupssetrinu heldur daglegt líf múgamanna – sjálf undirstaða allra stóratburðanna. Bjarni bregður á það góða ráð að gera stoltu og orðhvötu nesjastelpuna Maríu – sem kann meira að segja að lesa – að einni helstu persónunni. Hún hefur alist upp í sókn prestsins í Görðum – sem sé ögn fjær „skugga drottins“ en flestar aðrar persónur sögunnar og myndar skemmtilegt mótvægi við þær. Einkar spennandi þætti mér að skoða söguna alla með það í huga hvernig hún miðlar tilfinningum og hvernig unnið er í henni með tíma, rými og minni/minningar. Það er sjaldan sem maður stendur TMM_3_2018.indd 85 23.8.2018 14:19
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.