Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Síða 128

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Síða 128
U m s a g n i r u m b æ k u r 128 TMM 2018 · 3 kunnugleg stef og nafnleysi stúlkunnar undirstrikar að Smartís er saga kynslóð- ar, eða jafnvel unglinga almennt, óháð tíma og rúmi; bók sem fangar þversagn- irnar og tilfinningarnar sem einkenna unglingsárin. Einar Már Jónsson Sósíalisti með silkihanska Styrmir Gunnarsson: Uppreisnarmenn frjálshyggjunnar, byltingin sem aldrei varð. Veröld 2017. (Með hliðsjón af bókunum Allt kann sá er bíða kann, æsku- og athafnasaga Sveins R. Eyj- ólfssonar eftir Silju Aðalsteinsdóttur og Í liði forsætisráðherra eða ekki eftir Björn Jón Bragason.) Ef hægt er að gagnrýna bók Styrmis Gunnarssonar Uppreisnarmenn frjáls- hyggjunnar, byltingin sem aldrei varð fyrir eitthvað er það að hann skuli vill- ast inn á braut sem glapið hefur margan sagnfræðinginn, semsé skýra rás sög- unnar sem einhvers konar röklegt ferli þar sem menn með sínar hugmyndir, áform og líka takmarkanir eigast við; órökréttum tilfinningum þeirra, for- dómum, reiði, geðsveiflum, jafnvel hreinni glópsku, er hins vegar vísað út í ystu myrkur, þar sem þeim er uppálagt að vera til friðs. Eins og Styrmir segir sjálfur settist hann niður við að skrifa þessa bók þegar hann var orðinn úrkula vonar um að sjálfstæðismenn gerðu nokkurt raun- hæft uppgjör eftir hrunið 2008, ljóst var orðið að þeir ætluðu ekki að líta í eigin barm og spyrja sjálfa sig hvaða mistök þeir kynnu að hafa gert, hvort stefna þeirra í meira en áratug hefði kannski verið röng og hvað nú mætti gera til að leiðrétta siglinguna. Fylgishrun flokks- ins hefði þó átt að vera hvati til þess. Að vísu var ein heiðarleg tilraun gerð til að vekja máls á ábyrgð flokksins, en hún rann strax út í sandinn og þá var málið látið niður falla, þegjandi og hljóðalaust að því er virðist, en á því kann Styrmir enga skýringu. Í frásögn hans endurspeglast því hvernig dyggur sjálfstæðismaður lítur á sögu undanfarinna áratuga, hvernig hann leitast við að finna mistökin, án þess að ráðast á flokkinn sem slíkan, og hvernig hann reynir, eins og eðlilegt má teljast, að draga fram það sem flokkur- inn kann að hafa sér til málsbóta. Hvað sem annars má um frásögnina segja er hún gagnlegt framlag til umræðunnar, þarna kemur fram ein hlið málsins sem vert er að gefa gaum. Styrmir hefur frásögn sína með stutt- orðri lýsingu á stefnu Sjálfstæðisflokks- ins, þeirri stefnu sem gerði hann sjálfan að sjálfstæðismanni, og hann vill kenna við arfleifðina frá Ólafi Thors og Bjarna Benediktssyni eldra. Hún byggðist á þjóðlegum grunni, segir hann, og nefnir þá líka „varnarsamstarfið við Bandarík- in“ (sem einhver gárunginn kynni reyndar að segja að hafi tekið skoplegar dýfur síðan, en það er ekki viðfangsefni Styrmis þótt hann ýi að því síðar í bók- inni), síðan dregur hann fram „áherzlu á einkaframtak og frjálsa samkeppni en jafnframt velferðarstefnu, sem segja má að hafi verið innsigluð með byltingu í félagslegri þjónustu Reykjavíkurborgar í borgarstjóratíð Geirs Hallgrímssonar. Þetta var sú grundvallarstefna sem gerði Sjálfstæðisflokkinn að svo breiðum stjórnmálaflokki sem raun varð á“ (bls. 20–21). Nokkru síðar bendir Styrmir á TMM_3_2018.indd 128 23.8.2018 14:19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.