Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Síða 19
17
niest af Vestfjörðum, þar sem nyrztu hrepparnir eru að leggjast í
eyði, en Keflavík mun mega telja með mestu velmegunarbyggðar-
lögum á landinu vegna sívaxandi útgerðar.
III. Sóttarfar og sjúkdómar.
Með meira móti mun árið hafa verið kvillasamt af farsóttum, því
að bæði voru á ferð inflúeiiza og mislingai• og í kjölfari þeirra kvef-
lungnabólga með meira móti. Enn fremur stungu rauðir hundar sér
niður víða um land, auk þess sem framhald varð á faraldri að mænu-
sóíf, er hófst á síðast liðnu ári. Loks virðist almenn kvefsótt hafa
látið öllu meira á sér bera en í meðallagi. Ekki sér þó þessarar kvilla-
semi stað á dánartölu ársins, sem heita má í lágmarki (8,6%0) og hefur
íiðeins einu sinni orðið lægri, ef svo má kalla, þ. e. á síðast liðnu ári
(8,5%c).
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Talsvert kvillasamt í héraðinu á þessu ári, einkum fyrsta árs-
fjórðunginn. Voru þá hér á ferð samtímis kvefsótt, inflúenza, misling-
ai' og síðustu dreifar mænuveikinnar, auk hálsbólgu og iðrakvefs.
Hafnarfj. Heilsufar mátti heita gott þann hluta ársins, sem mér er
kunnugt um (mánuðina maí—des.), og fór batnandi, eftir því sem
á árið leið. Fyrstu mánuði ársins var heilsufarið lakara, en þá gengu
ineðal annars mænusótt og mislingar.
Stykkishólms. Þann tíma, er héraðslæknir sá, er skýrsluna gerði,
(síðustu 4 mánuði ársins) gegndi héraðinu, var talsvert kvillasamt.
Búðardals. Heilsufar gott á árinu, einkum seinna hluta ársins.
Bildudals. Árið frekar kvillasamt.
Bingeyrar. Heilsufar má telja heldur lakara en árið áður, en þó
sæmilegt.
Flateyrar. Mjög kvillasamt var í héraðinu á árinu allt frá árs-
byrjun til septemberloka, en úr því gott heilsufar.
Bolungarvikur. Frekar kvillasamt á árinu.
ísafj. Heilsufar með lakara móti.
Hestegrar. Með bezta móti.
Hólmavikur. Heilsufar með bezta móti og mjög gott síðara helming
ársins.
Hvammstanga. Heilsufar í meðallagi. Umgangskvillar yfirlcitt frein-
ur vægir og náðu ekki verulegri útbreiðslu.
Blönduós. Sóttarfar heldur með minna móti.
Sauðárkróks. Sóttarfar með langmesta móti.
Iíofsós. Heilsufar yfirleitt gott á árinu.
Ólafsfj. Nokkuð kvillasamt.
Dalvíkur. Heilsufar yfirleitt gott.
Akureyrar. Heilsufar með Iakara móti á árinu.
Grenivíkur. Heilsufar með lakara móti.
Breiðumýrar. Nokkuð kvillasamt á árinu.
3