Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Page 31
29
Hafnarfi. Gcngu hér vormánuðina. Eftir maílok örfá tilfelli. Far-
aldurinn fremur vægur, enda aðeins yngstu börnin, sem sýktust, þar
eð stutt er síðan veikin gekk hér.
Akranes. Komu upp úr áramótum, en breiddust mjög litið út fyrstu
mánuðina. Mun ástæðan vera sú, að það voru nærri eingöngu yngstu
börnin, sem voru móttækileg, en litlar samgöngur milli þeirra um það
leyti ársins. í april óx sjúklingatalan og náði hámarki í júní, en fjaraði
út í júlí. Sóttin var ekki þung.
Ólafsvíkur. Nokkur tilfelli í júlí og ágúst.
Búðardals. Gengu hér í maí og júní og munu hafa borizt frá Reykja-
vík. Lögðust allþungt á fullorðið fólk, en engir fylgikvillar, og enginn
sjúklinganna dó.
Reykhóla. Nokkur tilfelli í júní. Barst ekki frekara út.
Bíldudals. Bárust hingað frá Reykjavík í marz. 2 konur, 38 og 50
ára, lögðust rétt eftir að þær komu frá Reykjavík og voru allþungt
haldnar. Veikin breiddist lítið út. Öll börnin, sem veiktust, voru lítið
Veik.
Bingeyrar. Bárust hingað i héraðið í apríl frá Reykjavík. Fóru þeir
Um mest allt héraðið nema Auðkúluhrepp. Faraldurinn var vægur,
og sluppu margir, sem ekki höfðu fengið sóttina áður. Enginn veiktist
alvarlega. Passiv immunisatio var gerð á túberkúlínjákvæðum börnuin
°g vanfærum konum, sem ekki höfðu fengið mislinga. Árangur af
henni var góður. 3 fengu kveflungnabólgu upp úr mislingunum.
Flateyrar. Skaut upp á Ingjaldssandi í apríl (fyrst skráðir í marz),
en bærinn var einangraður, og bárust þeir ekki lit, en í júní bárust
þeir í dalinn aftur og urðu ekki stöðvaðir. Fóru þeir hægt um héraðið
°g voru vægir. Til Suðureyrar bárust þeir ekki fyrr en í nóvember, en
fóru þar geyst, svo að kennsla féll niður urn skeið i barnaskólanum.
Sýktust þar um 85 manns, enda höfðu mislingar ekki borizt þangað
í nær 20 ár. Sjúkdómurinn var vægur og fylgikvillalaus, enda var
læknis aldrei vitjað og því ekkert þessara tilfella á mánaðarskrám,
en talan höfð eftir hjúkrunarkonunni.
Bolungarvikur. í marz komu mislingar inn í héraðið. F'átt var frem-
ur af börnum og unglingum, er tekið gætu þá veiki, enda voru þeir
hér lengi, eða fram í september. Mjög vægir og engir fylgikvillar.
fsafi. Eins og vænta mátti, fylgdu senn mislingar í kjölfar kikhóst-
ans, þótt nú væru aðeins liðin 4 ár frá síðasta faraldri, en áður hafa
alltaf 6—7 ár liðið á milli faraldra. Eðlileg afleiðing af því, hve fá af
eldri börnunum voru móttækileg, var sú, að nú gekk veikin rniklu
hægar yfir en áður hefur þekkzt. í þetta sinn var hún 13 mánuði á
ferðinni — byrjaði í janúar, náði fyrst hámarki i nóvember (flestir
skráðir í desember), eða eftir 10 mánuði, og fjaraði svo út um ára-
mótin. í næsta faraldri á undan byrjaði veikin í maí, komst þegar í
hámark og fjaraði út í október (6 mán.). Veikin var yfirleitt væg, en
þó fékk einn drengur mjög slæman barkahósta (pseudo-croup) og
nnnar petechial blæðingar undir húð. Enginn dó úr veikinni. Mörgum,
seni veiklaðir voru, var gefið „reconvalescent“-serum mcð góðuin
árangri.
Hólmavíkur. 2 tilfelli skráð í júní. Annars ekki orðið vart.