Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Síða 41
39
kona, sem veiktist í sængurlegunni af erythema nodosum, en batnaði
fljótt og síðan elíki fundizt neitt að henni við ítrekaðar rannsóknir.
Ólafsjj. Telpa fékk þrimlasótt, var neikvæð við ítrekað berklapróf,
og ekkert sást athugavert við skyggningu.
Dalvíkur. Nokkur tilfelli í Hrísey.
Akureyrar. Samkvæmt berklaskýrslu hafa 4 tilfelli þessa sjúkdóms
komið til lækninga á árinu, 2 konur, 18 og 23 ára, 10 ára drengur frá
Húsavík og 28 ára karlmaður frá Raufarhöfn. Öllum þessum sjúk-
lingum hefur farnazt vel og ekki borið á berklum annars staðar hjá
þeim, nema hvað 23 ára konan á Akureyri hafði haft berkla í hné
áður.
Vestmannaeyja. Mér er kunnugt um 2 unglingsstúlkur héðan, sem
voru á sumarveitingahúsi í Reykjavík. Fengu þær veikina samfara
nýsmitun berkla. Þess utan hafa 2 fengið veikina hér (börn) samfara
nýsmitun af berklum. Staðfest með berklaprófum (undan og eftir
smitun) og röntgenskoðunum (hilitis).
Laugarás. Vissi um 1 sjúkling, unga stúlku úr Keflavík, á Laugar-
vatnsskóla. Mun hafa láðst að skrásetja hana.
20. Ristill (herpes zoster).
Töflur II, III og IV, 20.
Sjúklingajjöldi 1938—1947:
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947
Sjúkl......... 62 63 70 59 58 51 65 57 56 73
Læknar láta þessa getið:
Þingeyrar. Öldruð kona fékk ristil og hafði eftirverki um langan
tíma.
Bolungarvíkur. Sést hér stöku sinnum, þó elcki með meira móti á
þessu ári.
ísafi. Fáein tilfelli síðustu mánuði ársins.
Hvammstanga. 2 tilfellanna með nokkru millibili á sama bæ.
Blönduós. Ristil sá ég þrisvar sinnum. Einn sjúklingurinn var 2
ara krakki, annar stúlka á þrítugsaldri og þriðji kona á sjötugasta ári.
Dalvikur. Nokkur tilfelli, en ekki skráð á mánaðarskýrslur.
Akuregrar. Skráð tilfelli öll fremur væg.
Kópaskers. 1 tilfelli á árinu á mjög afskekktum stað (Hólsfjöllum).
Dórshafnar. 1 tilfelli, sem batnaði fljótt.
Egilsstaða. Meinlítil tilfelli, nema 1 á rosknum manni. Reyndist
það þrálátt og illt viðureignar.
Nes. 2 tilfelli með löngu millibili.
Búða. 2 karlmenn fengu ristil á árinu (ekki skráðir). Annar þeirra
8amall maður, sem var þungt haldinn og var lengi að ná sér.
Breiðabólsstaðar. 3 fremur væg tilfelli, ekki skráð á mánaðarskrár.
Eyrarbakka. Nokkur tilfelli.