Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Blaðsíða 43
41
Aðeins 3 tilfelli skráð i 2 héruðum (Akranes og Blönduós). Mun
þó hafa stungið sér niður víðar, þó að ekki hafi verið mikil brögð
að, auk þess sem sjúkdómsgreining vill jafnan verða vafasöm eftir
tilkomu hinna nýju mikilvirku lyfja.
Læknar láta þessa getið:
Rvik. Læknar hafa skrásett 5 meningitistilfelli á árinu, og voru það
allt börn. Um 3 af þessum tilfellum tekur læknirinn það fram, að
heilabólgan hafi komið út frá eyrnabólgu, og dó 1 af þeim sjúkling-
um. Um 1 tilfellið er ekki vitað, en um hið 3. er vitað með vissu, að það
var ,,epidemica“ (þó ekki skráð). Það barn fór á Farsóttahúsið og
lifði. Elckert vitað, hvaðan sú smitun kom.
Hafnarfí. 3 sjúklingar taldir, 1 barn og 2 konur. Barninu batnaði
tiltölulega fljótt, en konurnar eru ekki jafngóðar enn. (Ekkert þess-
ara tilfella skráð).
Akranes. Heilasóttarsjúklingurinn (barn) fékk pensilín og batnaði.
Blönduós. Ung ltona virtist fá heilasótt, en lítið varð úr sjúkdómnum;
batnaði við súlfaþiazól. Þá sá ég og barn í Hvammstangahéraði, og
var það með heilasótt eða mænusótt með heilaeinkennum. Það mun
hafa komið á mánaðarslcrá í mínu héraði.
24. Stingsótt (pleuritis epidemica).
Töflur II, III og IV, 24.
Sjúklingafíöldi 1938—1947:
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947
Sjúkl......... 20 8 21 15 76 20 43 318 230 23
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Skráðir hafa verið á árinu 8 sjúklingar með „myositis epi-
demica“ og 4 með „hepatitis epidemica“, sem sennilega hefur verið
sami sjúkdómur. Er þetta aðeins litilræði í samanburði við árið á
undan.
Bolungarvikur. Lítið borið á stingsótt á þessu ári.
ísafí. Örfá tilfelli um haustið.
Sauðárkróks. Nokkur tilfelli komu með stuttu millibili, en annars
er erfitt að vera viss um sjúkdómsgreiningu, þegar engir faraldrar
eru, en aðeins einstök tilfelli.
Breiðabólsstaðar. 1 tilfelli (ekki skráð), sem batnaði fljótt við legu
°g bakstra.
25. Mænusótt (poliomyelitis anterior acuta).
Töflur II, III og IV, 25.
Sjúklingafíöldi 1938—1947:
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947
Sjúkl......... 81 12 3 1 1 „ 2 368 450 227
Dánir ........ 3 „ „ „ „ „ 1 10 13 5
Pyrstu 2—3 mánuði ársins heldur áfram mænusóttarfaraldur sá,
Sem hófst á hausti næst liðins árs, einkum í Rvik og nágrannahéruð-
6