Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Síða 47
45
innan, vanlíðan allmikil. Virtist ekki batna neitt við súlfalyf (scnni-
lega virus). Stóð stundum 1—2 vikur.
Angina Plaut-Vincent: Undanfarið hefur að jafnaði verið skráð í
Rvik allmarg't tilfella þessarar kverkabólgu, en nú aðeins 1 tilfelli,
5—10 ára barn í febrúarmánuði. Ekki mun rétt að álykta, að sýk-
mgar þessarar hafi gætt að sama skapi minna en áður, heldur hafi
skrásetning af einhverjum ástæðum meira farizt fyrir, auk eðlilegra
vanhalda á sjúkdómsgreiningunni.
Conjunctivitis epidemica: í Laugaráshéraði er skráður faraldur augn-
angurs í janúarmánuði, alls 33 tilfelli á ungu fóki, þannig: 15—20 ára:
m. 11, k. 15; 20—30 ára: m. 3, k. 4.
Encephalitis epidemica: Ekki nánara skýrgreind encephalitis er skráð
1 4 héruðum (Hafnarfj., Búðardals, ísafj. og Stórólfshvols), sam-
tals 7 tilfelli, sem flokkast þannig eftir mánuðum: Janúar: 2, júni:
U júli: 2, september: 1, október 1, en eftir aldri: 5—10 ára: 1, 10—15
ára: 4, 15—20 ára: m. 1, 40—60 ára: k. 1.
Búðardals. Varicellasjúldingur fékk upp úr þeim sjúkdómi en-
cephalitis.
ísafi. Eftir á að hyg'gja er ástæða til að spyrja, hvort þau 2 tilfelli,
sem skráð eru sem meningo-encephalitis, hafi ekki verið polio-en-
Cephalitis.
Febris incerta: Djúpavogshéraðslæknir skráir í október 7 tilfelli
égreindrar hitasóttar, 5—10 ára: 3, 10—15 ára: 1, 15—20 ára: m. 1,
20—30 ára: m. 2, sbr. ummæli hans hér á eftir.
Djúpavogs: í lok septembermánaðar og framan af októbermánuði
8ekk hér akút hitasótt, er lýsti sér með kveljandi höfuðverk og væg-
um hita, um 38°, en auk þess bar á ógleði og uppsölu hjá sumum;
stóð þetta stutt, flestir kornnir á fætur eftir 1—2—3 daga; mest veikt-
lst af börnum 8—10—12 ára og þá af ungu fólki um tvítugt; mín var
aðeins vitjað til 7 sjúklinga, en ég hafði hins vegar spurnir af fleir-
Ulu, er veiktust. Engin merki til kvefs eða hálsbólgu sáust, nema hjá
einu barni, og hafði það meningismus.
Hepatitis epidemica: Auk 3 tilfella gulusóttar (sjá hér að framan)
eru skráð í Rvík 4 tilfelli sóttar, sem nefnd er hepatitis epidemica,
1 janúar k. 30—40 ára: 1, júlí k. 20—30 ára: 1, október m. yfir 60
ai'a: 2. Gizkar héraðslæknir á, að í raun og veru hafi verið um sting-
sótt að ræða.
Meningitis epidemica: í Rvík eru skráð á farsóttaskrár 5 tilfelli
»nieningilis“ í börnum án þess að skýrgreint sé nánara, í janúar 0—1
ars: 2, 5—10 ára: 1, marz 0—1 árs: 1, nóvember 0—1 árs: 1.
Otitis media acuta: Jafnan er á einum stað eða öðrum getið farald-
Urs miðeyrabólgu, í þetta sinn í Stylckishólms, en aðeins skráð 2 til-
felli i aprilmánuði, börn 1—5 ára, og ekki gerð nánari grein fyrir.
Pemphigus neonatorum: í Rvík eru skráð 15 tilfelli blöðrubólu, í
niarz 3, ágúst 8, nóvember 4. Mun fátt eitt koma hér til skila, þvi að
vitað er, að þrálátur faraldur hefur verið að þessum kvilla í höfuð-