Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Síða 67
65
Egilsstaða. Tíðustu kvillar eru ýmiss konar gigt, tannskemmdir,
ineltingartruflanir, tannsjúkdómar og húðkvillar alls konar.
Seyðisfí. Auk kvefs og' annarra farsótta tel ég tíðustu kvillana slapp-
'eika og taugaveiklun, meltingartruflanir og gigt í ýmsum myndum.
Tannskemmdir fara minnkandi.
Nes. Algengustu sjúkdómar, auk kvefsins, eru tannskemmdir, gigt,
hlóðleysi, taugaveiklun og meitingarsjúkdómar.
Búða. Algengustu kvillar, svipað og áður, tannskemmdir, þar á meðal
nokkur tilfelli af paradentosis, gigt ýmiss konar og meltingarsjúk-
dóniar.
Breiðabólsstaðar. Tannskemmdir algengastar. Dró 148 tennur og
gerði við 12. Fékk mér stig'inn tannspólurokk og hef reynt að spóla
°g fylla þær tennur, sem ekki eru svo mikið skemmdar, að þeim sé
ekki bjargarvon. Fæstir koma, fyrr en gat er komið á tönnina, sem
nser alveg inn að pulpa.
Vestmannaeyja. Auk farsótta og tannskemmda eru taugaverkir og
taugaveiklun áberandi tiðir kvillar, einkum í konum. Húshjálp er
nð verða ónóg, svo að konurnar eru einar með börnin og heimilin.
Tær, sem dugandi eru og samvizkusamar, ganga sér til húðar og
gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Margar þeirra ganga ekki
heilar til skógar (eczema og fótasár), en gefa sér ekki tíma til að
fá úr því bætt.
Egrarbakka. Algengustu kvillar auk farsótta eru gigtarsjúkdómar,
taugaveildun, meltingarkvillar og allergiskir sjúkdómar.
2. Anaemia perniciosa.
Eleppjárnsreijkja. 1 tilfelli.
Blönduós. Þá veiki hefur fimmtugur bóndi, en hann fær lifrar-
sprautur öðru hverju og lafir á því haldreipi.
Sauðárkróks. 2 konur. Fá þær við og við lifrarsprautur og borða
ai)k þess lifur, þegar hún fæst.
Grenivíkur. 1 sjúldingur með þenna sjúkdóm. Fær alltaf öðru
hverju lifrarlyf og helzt við með því.
Vopnafj. 2 tilfelli.
Egilssiaða. Tæplega fertugur bóndi kom til mín í október. Hefur
a'ltaf áður verið stálhraustur, en nú fölur, gugginn og horaður og ófær
allrar vinnu sökum máttleysis, þreytu við hvers konar áreynslu og
'jiæði. Engin local einlcenni, hvorki subjectiv né objectiv. Við lifrar-
at og lifrarlyf varð hann allur annar maður á vikutíma, og síðan má
j^Sja, að heilsa hans hafi farið eftir því, hvort hann hefur notað
Pessi meðöl eða ekki. Þolir þó ekki erfiða vinnu. í ráði er frekari
lannsókn í Reykjavík, cn ekki hefur orðið af því enn.
Seyðisfj. (Diagnosis ex juvantibus). 64 ára karlmaður hefur árum
fÍman þjóðzt af blóðleysi, og síðustu árin hefur aðeins verið hægt
að halda honum við með Campoloninndælingum. Blóð hans hefur verið
scnt til rannsóknar, en ekki hefur blóðmyndin bent á sjúkdóminn.
Búða. 1 kona um fertugt. Verður stöðugt að nota lyf (Neohepatex
1 vöðva).
9