Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Side 107
105
thoracis 1 (maður í hafnarvinnu varð á milli undirstöðubjálka og
yfirbyggingar „krana“, er hann snerist, og lagðist brjóstkassinn
saman, svo að öll rif brotnuðu frá hrygg vinstra megin. Maðurinn
iézt eftir eina klukkustund), corpora aliena corneae 4, conjunctivae 4,
labii inferioris 1 (öngull), regionis surae 1 (öngull), lítið barn gekk
að öðru úti á götu og ætlaði víst að kyssa það, en beit um leið í
slímhúð neðri varar. Engin dauðaslys og engin slysin stórkostleg.
Mikið um smærri áverka, bruna og þess háttar.
Akureyrar. Af slysuin á árinu ber fyrst að geta um hið milda flug-
slys, er varð hinn 29. maí, er farþegaflugvel frá Flugfélagi íslands
rakst á Hestfjall i Héðinsfirði, og allir, sem í henni voru, 25 manns,
létu lífið, þar af 9 búsettir og jarðsungnir á Akureyri. Slysið vildi til
með þeim hætti, að skyndilega skall á þoka, niðdimm, er flugvélin
var að fljúga inn Eyjafjörðinn á leið frá Reykjavík til Akureyrar, og
mun hún hafa verið að snúa við aftur, er hún rakst á Hestfjall við
Héðinsfjörð. Komið var með lík allra þeirra, er þarna fórust, til Akur-
eyrar, og tókst þar að þekkja þau öll, þótt sum þeirra væru mikið
brunnin, og gjörla mátti sjá á líkunum, að allir i flugvélinni muni
hafa dáið þegar, er áreksturinn á fjallið varð. Komið var með 11 ára
dreng úr Grimsey, er hafði fengið slysaskot í kviðarholið, en þegar
verið var að aka honum neðan frá Torfunesbryggjunni að sjúkrahús-
inu, andaðist hann (liklega vegna innvortis blæðingar). Einnig varð
á árinu dauðaslys með þeim hætti, að 71 árs maður, er bjó einsamall
í torfbæ í nágrenni bæjarins, brann inni, er kviknað hafði í nefndum
torfbæ. Bruninn varð síðara hluta dags hinn 20. sept., og kom fólk á
vettvang undir eins, er reyk sást leggja frá torfbænuin, en þó var
þetta of seint til þess að bjarga gamla manninum, því að hann var
þegar kafnaður í reykjarsvælunni. Aðrar helztu slysfarir voru eftir-
farandi: Fract. cranii 5, columnae 2, antibrachii 7, tibiae 1, radii 9,
maxillae 1, costae 7, digiti 3, patellae 1, femoris 4, cruris 5, humeri 4,
fibulae 7, mandibulae 2, claviculae 3, malleoli 3, metacarpi 4, vulnera
contusa 24, incisiva 35, ambustiones 18. Auk þessa hefur verið nokkuð
um luxationes og corpora aliena.
Grenivikur. Slys urðu ekki stórvægileg' önnur en að gömul kona,
sem orðin var hrum, féll á gólfi og fékk fract. colli femoris. Lézt hún
af völdum byltunnar og elli. Helztu slysfarir aðrar voru: 12 ára
drengur að leikjum með jafnöldrum sínum datt og viðbeinsbrotnaði.
Bóndi var að koma herfi upp í kerru, missti af því, og lenti það á
bringspölum hans. Stóð hann lengi á öndinni og gekk illa að anda á
eftir: hafði mikinn verk fyrir brjósti %4ð minnstu hreyfingu, lá rúm-
fastur um 10 daga, en fór batnandi úr þvi. Var þó slappur til erfiðis-
vinnu mikið af sumri. Telpa, óvön á hjóli, fór niður bratta brekku.
Fyrir neðan hana var bugða á veginum og gaddavírsgirðing í nokk-
urri fjarlægð. Hefur telpan sennilega orðið hrædd, því að hún hcml-
aði ekki, en hentist út af veginum í bugðunni og á gaddavírinn. Reifst
illa á hægra læri og fæti og fékk smárispur á maga. Drengur var að
draga saman hey með rakstrarvél. Datt hann af henni, en hestur, er
fyrir henni var, fældist. Lenti drcngurinn framan við tindana og
dróst með vélinni nokkurn spöl, en losnaði þó frá henni. Hjólið fór
H