Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Page 114
112
Búða. 1 kona á fimmtugsaldri. Hefur henni hrakað mjög síðast
liðin 2 ár.
Vestmannaeyja. Hér þyrfti nokkur geðveikrarúm, minnst 2, fyrir
óða sjúklinga, karl og konu. Loksins í suinar komst héðan á Klepp
kona, sem alls ekki var hægt að hafa á sjúkrahúsinu innan um aðra
sjúklinga, þó að svo yrði að vera. Hélt hún oft vöku fyrir sjúklingunum
og réðst stundum á hjúkrunarfólkið.
Um fávita.
Þingeijrar. Einn hinna skráðu allt að því sjálfbjarga.
ísajj. Fávitar taldir hinir sömu sem áður, og dveljast 3 á Elli-
heimilinu, en 6 1 heimahúsum. Erfitt er að hafa fávita heima, og
verður aðbúnaður þar að teljast mjög óviðunandi í suinum tilfellum.
Hætt er við, að skráning fávitanna sé eigi tæmandi, sérstaklega hvað
vngri börnin snertir, enda er hér erfitt um vik, þar sem engin inn-
lend próf eru til að styðjast við.
Hólmavikur. Meðferð og gæzla eina fávitans afburða góð.
Vestmannaeijja. Meðferð fávita er góð.
Um daufdumba.
Rvík. Skýrsla um daufdumba er samin eins og áður eftir bæjar-
manntalinu og aukið við og leiðrétt eftir föngum.
U m m á 1 h a 11 a.
Hólmavíkur. 3 skráðir málhaltir, 2 þeirra (systkini) munu stama
nokkuð, en hafa af því lítinn baga.
Um heyrnarlausa.
Blönduós. Heyrnarlausir fremur vantaldir en oftaldir.
U m b 1 i n d a.
Rvík. Skýrslugerð um blinda hagað á sama hátt sem segir um dauf-
dumba.
Hafnarfj. Blinda fólkið er talið eftir skýrslum prestanna. Sú talning
er varla tæmandi. Víst nokkrir sjóndaprir, sem ekki hafa komizt á
skrána.
Þingeyrar. Öll, sem skráð eru, blind, en sjá þó þá skimu, að þau eru
rólfær liti við og inni.
Ögur. Blindir menn tiltölulega margir hér.
Blönduós. Blindum mönnum fækkar heldur.
Sauðárkróks. Blindir menn heldur færri en i fyrra, og hafa engir
nýir bætzt við á árinu.
Um deyfilyfjaneytendur.
Hafnarfj. Ekki kunnugt um deyfilyfjaneytendur í héraðinu.
Hvammstanga. 1 sjúklingur með encephalitis chronica hefur vanizt
á inorfín. Hann er um fimmtugt og ineð köflum mjög illa haldinn af
sjúkdómi sínum.
Sauðárkróks. Deyfilyfjaneytendur engir.
Segðisfj. 70 ára karlmaður, annað hjóna, sem lengi hefur verið á
deyfilyfjaskrá, lézt á árinu (inflúenza, pneumonia).
Vestmannaeyja. Deyfilyfjanejdendur, 2 konur, hinar sömu og áður.