Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Síða 214
212
enn að hafnarmannvirkjum á báðum fjörðunum. 2 nýir bátar keyptir
á árinu, sinn á hvorn staðinn.
Hólmavíkur. Hér til má helzt telja byggingu hraðfrystihúss og
verbúða á Kaldrananesi við Bjarnarfjörð. Er hraðfrystihúsið tekur til
starfa innan skamms, munu möguleikar til útgerðar aukast þar mjög.
Nokkuð miðaði lagningu hins nýja þjóðvegar um Hrútafjörð til Hólma-
víkur, og inun væntanlega komið beint vegarsamband þá leiðina á
næsta sumri. Vonir standa til, að sá vegur verði í framtíðinni opinn
flesta mánuði ársins, og er þar um að ræða mikla samgöngubót fyrir
héraðið, þar sem vegurinn um Dali og Steinadalsheiði hefur aðeins
verið bílfær um hásumarið.
Hvammstanga. Allmikið var unnið í sveitunum, bæði að jarðabót-
um og byggingum, og meira en áður. 2 beltisýtur voru á ferðinni og
brutu land til nýi'æktar. Einnig var skurðgrafa nokkuð í notkun.
Unnið var áfram að bryggjugerð á Hvammstanga, einnig við innrétt-
ingu frystihúss kaupfélagsins, og er því verki lokið.
Blönduós. Framfarir til almenningsþrifa hafa orðið allmiklar á ár-
inu. Stærsta átakið var bvgging þurrmjólkurstöðvarinnar á Blöndu-
ósi, en þar var einnig byrjað á nýrri vatnsveitu og hún lögð að nokkru
leyti. Haldið var áfram með hafnargerðina í Höfða, vatnsveita lögð um
nokkurn hluta kauptúnsins og skolpræsagerð hafin, lagðar nokkrar
nýjar götur og hafin eða haldið fram byggingu allmargra myndarlegra
íbúðarhúsa. Búnaðarsamband sýslunnar keypti nokkrar mikilvirlcar
jarðvinnsluvélar, sem einnig eru notaðar við vegagerð.
Sauðárkróks. Unnið var að virkjun Gönguskarðsár, og var stíflunni
lokið og lagt mikið af leiðslupípum. Gert er ráð fyrir, að virkjun og
stöðvarbyggingu verði lokið á þessu ári og að stöðin geti tekið til
starfa. Einnig var unnið að dýpkun hafnarinnar, en hún var farin að
grynnast æði mikið. Byggt var eitt síldarplan í viðbót, en því miður
urðu lítil not fyrir það á þessu ári, því að nær engin síld kom til sölt-
unar. Sauðárkrókur féklt á miðju ári bæjarréttindi, og var kosin
bæjarstjórn og bæjarstjóri. Götum voru gefin nöfn og húsum númer,
en áður hafði hvert hús sérstakt nafn. Talsvert hefur komið af stór-
virkum vinnuvélum í héraðið, og hafa skurðgröfur og jarðýtur unnið
að undirbúningi ræktunar og við vegagerð, enda slétta bændur tún
sín og stækka þau einnig. Mikið vantar þó á, að allur heyfengur fáist
á ræktuðu landi, en að því er stefnt.
Ólafsfj. Lokið við norðurgarð hafnarinnar, en ekki fullgengið frá
enda hans. Reist trébryggja við hann. GamJa bátabryggjan gerð upp
að nýju, staurar rammaðir niður á millibilin og fyllt á inilli með grjóti.
Allt yfirborð bryggjunnar steypt. Mokstursskipið Grettir mokaði sandi
frá bryggjunni. Afarmikill sandur barst inn í höfnina í haust og vetur.
Mun ekki taka fyrir sandburð, fyrr en vesturgarður er fullgerður og
höfninni verður lokað. Niðursuðuveksmiðja komst undir þak, og
ýmsar vélar komu. Haldið áfram með Lágheiðarveg og Stífluveg í sam-
bandi við hann. Vegasambandið ekki fullgert, en þó svo, að farþega-
bílar komust hingað síðast liðið sumar. Steypt nýtt síldarplan við
höfnina, norðan gömlu bryggjunnar.
Dalvikur. Hafnargerðin á Dalvik byggði sildarsöltunarplan framan