Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2020, Blaðsíða 32
SJóNARSPIL TEGUNDANNA
31
Hlutverk teikninga var að hans mati óumdeilanlegt og hann réði nokkra
teiknara til starfsins til að skýra ýmis náttúrufyrirbæri, þjóðhætti og dýr.
Varðveist hafa um 120 teikningar af fuglum, fiskum og steintegundum sem
Eggert lét gera með útgáfuna í huga auk þess sem eirstungur voru gerðar
eftir öðrum myndum og birtar í bókinni. Teiknararnir voru Ole Berg (1727-
1763), Michael Fosie (1724-1794), og Hans Liunge (óþekktur), en eftir
þann síðastnefnda liggja litríkar fugla- og fiskamyndir.82 Bróðir Eggerts,
Jón ólafsson yngri frá Svefneyjum (1738-1775), mun hafa lært teikningu
þegar hann var í námi í Kaupmannahöfn.83 Nokkrar myndir í myndasafninu
eru undirritaðar með hans hendi, þar á meðal mjög nákvæmar myndir af
steinum og ein mynd af hval. Hún sýnir Grænlandshvalinn, eða norðhval-
inn, sem rak á fjörur við Seltjarnarnes árið 1763. Þetta er ekki útlínumynd
í ætt við teikningar Jóns lærða, heldur skýringarmynd, þar sem teiknarinn
aðgreinir og nefnir með latínuheiti líkamshluta hvalsins af vísindalegri ná-
kvæmni.84 Hún sker sig því frá öðrum teikningum í Ferðabókinni, sem sýna
dýr í náttúrulegu umhverfi sínu án nokkurs skýringatexta. Myndin er afar
fínleg og nákvæmlega dregin með penna og bleki. Líkami hvalsins er litaður
með blágráu þvegnu bleki, og endurspeglar ljóst yfirbragð myndarinnar ef
til vill hugmyndir manna um hreinleika hvalsins. Í Konungs skuggsjá er fæðu
norðhvalsins lýst sem sérstaklega hreinni:
82 Egill Snorrason, „Eggert Olafsens´s og Biarne Povelsen´s Rejser gennem Island
1749-1757 og illustrationerne dertil“, Árbók hins íslenzka fornleifafélags, 1. janúar
1972, bls. 81–98, hér bls. 93.
83 Þóra Kristjánsdóttir, Mynd á þili. Íslenskir myndlistarmenn á 16., 17., og 18. öld,
Reykjavík: JPV útgáfa og Þjóðminjasafn Íslands, 2005, bls. 118–120.
84 Myndin er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands. Sótt 5. september 2019 af http://
sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=692902&Paging=false.
Jón ólafsson yngri (1738-1775), Grænlandshvalur, 1763. Þjóðminjasafn Íslands.