Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2020, Blaðsíða 47
ÆSA SIGURJóNSDóTTIR
46
Myndin er því vitnisburður um að hugmyndafræði umönnunarlýðræðis-
ins (e. care- democracy) hefur skotið rótum í fjölmiðlum meginstraumanna
og að hvalurinn hefur ef til vill öðlast einhverskonar jafningjastöðu við
manninn, sem sýnir meiri nærgætni gagnvart náttúrunni en áður. Tegund
hvalanna skiptir ekki lengur höfuðmáli, né upplýsingar um stærð þeirra, út-
lit, eða innræti. Björgunarsveitir eru nú kallaðar á vettvang til að bjarga dýr-
unum og starf þeirra verður myndhverfing um hamfaraótta. Þannig hefur
merking orðsins hvalreki umhverfst. Það merkir ekki lengur happafengur
heldur vekur upp samúð, hryggð og jafnvel tilfinningu fyrir missi.132 En
þrátt fyrir þessa viðhorfsbreytingu er hvalreki enn sjónarspil, jafnvel þegar
hann birtist í vanmáttugum líkama skepnu sem þarfnast umönnunar.
Ú T D R Á T T U R
Sjónarspil tegundanna: Hvalurinn í öllum sínum (líf) myndum
Myndir af hvölum hafa lítt verið rannsakaðar jafnvel þótt þær séu mikilvægar heim-
ildir um þekkingu á tegundunum og þróun iðnvæðingar í hvalveiðum. Þessi grein
er þverfræðileg tilraun til að kanna hvernig hvalir eru – og hafa verið myndgerðir
og hvernig listamenn gagnrýna ímyndir ráðandi sjónmenningar. Sýnt er fram á
hvernig lífvaldið hefur mótað myndir og hvernig upplýsingatæknisamfélagið um-
breytir myndgerð samtímans. Að lokum verður skoðað hvernig ný sýn á umhverfis-
mál hefur skapað forsendur til að túlka myndir út frá sjónarhorni umhyggjusiðfræði.
Lykilorð: hvalir, hvalaskoðun, hvalreki, Keikó, ljósmyndun, mannöld, sjónmenning,
samtímalist, umhverfisfræði, umhyggjusiðfræði
étinn““, sótt 14. janúar 2020 af https://www.frettabladid.is/frettir/engin-regla-um-
hvalreki-hluti-var-urdadur-og-hluti-etinn/.
132 Giovanni Bearzi, Nino Pierantonio og Massimo Demma, „Perception of a cetacean
mass stranding in Italy. The emergence of compassion“, Aquatic Conservation. Ma-
rine and Freshwater Ecosystems, 20: 6/2010, bls. 644–654. Sótt 5. september 2019 af
https://www.researchgate.net/publication/215875000_Perception_of_a_cetacean_
mass_stranding_in_Italy_The_emergence_of_compassion.