Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Page 10
SJÁLfSMYnD OG óKEnnILEIKI Á TÍMUM fJÁRMÁLAHRUnS
15
um heimilið. Upphaflega er „unheimlich“ skilgreint sem andstæða „heimlich“, á
ensku „homely“ og á íslensku „heimilislegt“, í merkingunni látlaust eða fábrotið.
Ógreinileiki hugtaksins liggur ekki aðeins í þýðingu þess, því í grunninn er það
margrætt, samkvæmt Freud, sem útskýrir hvernig „heimlich“ er upprunalega
flókið hugtak sem býr að minnsta kosti yfir tveimur ólíkum merkingum.26 Annars
vegar vísar það í hugmyndina um heimili sem öruggt rými sem einkennist af
nánd og öryggi, fábrotnum huggulegheitum og nostalgíu. Á hinn bóginn tjáir
það eitthvað sem er hulið, falið og geymt úr augsýn. Neikvæða formerkið „un“
bætir einhverju óþægilegu og undarlegu við orðið, að mati Freuds, sem gefur
til kynna tengsl milli heimilisins, öruggs rýmis einkalífs fjölskyldunnar, við falin
leyndarmál fortíðar; eitthvað sem er niðurbælt á stað sem iðulega er talinn ör-
uggur og friðsæll. Freud vísar í útskýringu þýska heimspekingsins Schelling til að
komast að eftirfarandi niðurstöðu: „Því að þetta óhugnanlega [innskot: ókenni-
lega] er í rauninni ekkert nýtt eða framandi, heldur eitthvað, sem er handgengið
og gamalkunnugt í huganum, en hefur einungis fjarlægst hann við bælingu.“27
Hið ókennilega verður þar af leiðandi til við bælingu því það er upphaflega
eitthvað sem fólk þekkir og kannast við en bælir, og við það umturnast það og
breytist í eitthvað sem er óþekkt og vekur óhugnað. Ef hið ókennilega er sett í
samhengi við minni og minningar má leiða fram hvernig það skilgreinir endur-
komu óþægilegra minninga; atburða sem sjálfsveran leitast við að gleyma og
vill helst ekki rifja upp. Í skáldsögunum sem ég fjalla um hér síðar má greina
flótta hjá sögupersónunum, sem neita að horfast í augu við „drauga“ fortíðar og
uppskera í staðinn ákveðna truflun í formi draugagangs.
freud dregur fram tengsl á milli hins ókennilega og málefni dauðans og
dauðra líkama: „Mörgum finnst það afskaplega óhugnanlegt [innskot: ókenni-
legt], sem viðkemur dauða, líkum, endurkomu dauðra, anda og drauga.“28
Dauðinn vekur ugg og óhugnað því tengsl okkar við yfirvofandi endalok eru
flókin og erfið vegna tveggja ástæðna að mati Freuds. Sú fyrri lýsir þeim erfiðu
tilfinningum sem vakna þegar við þurfum að bregðast við dauðanum, en sú
seinni hvernig dauðinn endurspeglar óvissu í sinni verstu mynd því við vitum svo
lítið um hann og hvað raunverulega gerist þegar við deyjum. Freud skilgreinir
óttann við dauðann sem frumstæðan ótta sem veldur því að við skilgreinum hinn
26 Sigmund freud, „Hið óhugnanlega“, bls. 219.
27 Sama heimild, bls. 219. Upphafleg tilvitnun: „This uncanny is in reality nothing new or
alien, but something which is familiar and old-established in the mind and which has
become alienated from it only through the process of repression.“, Sigmund freud, „The
Uncanny“, bls. 217.
28 Sigmund freud, „Hið óhugnanlega“, bls. 220.