Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Qupperneq 13
VERA KnÚTSDóTTIR
18
lista á Íslandi.36 Ég man þig er ein vinsælasta bók Yrsu en hún hefur verið þýdd á
fjölda tungumála og árið 2017 var gerð kvikmynd eftir bókinni.37 Þrátt fyrir að
sagan fjalli öðrum þræði um óleyst glæpamál og rannsókn lögreglu á óútskýrðum
andlátum, minnir hún meira á hrollvekjur í anda gotnesku hefðarinnar því hún
fjallar um reimleika og drauga sem rísa upp frá dauðum til að koma á framfæri
mikilvægum skilaboðum til þeirra sem eftir lifa. Það sem einkennir helst hrunhroll-
vekjur Yrsu eru reimd hús og heimili í hættu, sem skírskotar sterklega til afleiðinga
fjármálahrunsins árið 2008, en í lífi almennra borgara hafði það mest áhrif á
húsnæðismarkað og afborganir heimilislána. Hall ræðir hvernig fjármálahrunið
hafði helst áhrif á húsnæði borgara: „Áhrif hrunsins voru af margvíslegum toga,
en fyrir Íslendinga mátti helst greina þau á sviði grunnþarfa; húsnæðis. Hús-
næðiseigendur höfðu verið hvattir, óviturlega og stundum ólöglega, til að taka
veð í öðrum gjaldeyri en krónu (í þeirri trú að skuldirnar myndu lækka með
styrkingu krónunnar), en 40% þeirra lentu í vanskilum á greiðslum í fasteigna-
veði.“38 Reimd hús, og reimleikar sem bundnir eru við heimilið, endurspegla
óskilgreinda og óþekkta ógn sem sækir að heimilunum og tákna með þeim hætti
fjármálakvíða og ótta fólks við að missa lifibrauð sitt og húsnæði. Eins og kom
fram í inngangi er það vel þekkt að hrollvekjan sem grein í bókmenntum og kvik-
myndum sækir í sig veðrið á tímum efnahagsþrenginga. Í greininni „Syndaupp-
gjör í skáldsögunni Ég man þig“ sem birtist í Ritinu árið 2020, ræðir Guðrún Björk
Guðsteinsdóttir hvernig hrollvekjur kallast á við samfélagsleg uppgjör og um-
brotatíma, og greinir hvernig saga Yrsu birtist sem „aldarspegill á þá siðferðis-
legu upplausn sem helsta hagsældartímabil íslenska lýðveldisins leiddi af sér.“39
36 Sjá til dæmis „Arnaldur missti toppsætið til Yrsu“ Vísir.is, 8. desember 2011, sótt 8. maí
2023 af https://www.visir.is/g/2011712089917; „Ég man þig söluhæst“, RÚV, 16.
mars, 2011, sótt 8. maí 2023 af http://www.ruv.is/frett/eg-man-thig-soluhaest.
37 Sigrún Margrét Guðmundsdóttir hefur fjallað um aðlögunina hér: „Mother‘s tomb: The
Haunted House in óskar Þór Axelsson‘s I Remember You“, Journal of Scandinavian Cinema
11/2021, bls. 49–58. Hrunþáttur verksins er ekki til staðar í kvikmyndinni og hún er því
ekki til umræðu hér.
38 The effects of the Crash were of course numerous and diverse, but for most Iceland-
ers were felt first and foremost in terms of one of our most basic necessities, housing.
Unwisely and often unlawfully encouraged to take out mortgages denominated in cur-
rencies other than the króna (on the assumption that these debts would depreciate as the
króna grew irresistibly stronger), 40% of households soon found themselves significantly
in arrears on mortgage payments. Aleric Hall, Útrásarvíkingar!, bls. 8. Hér vísar Hall í
Eirík Bergmann, Iceland and the International Financial Crisis: Boom, Bust and Recovery, Basings-
toke: Palgrave Macmillan, 2014, bls. 129.
39 Guðrún Björk Guðsteinsdóttir, „Syndauppgjör í skáldsögunni Ég man þig eftir Yrsu Sig-
urðardóttur“, Ritið 3/2020, bls. 119–140, hér bls. 140.