Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Síða 70

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Síða 70
KVIðRISTARINN Í KAUPMANNAHÖFN 75 að nefna að einstaka morðingjar geta vel rúmast innan nokkurra mismunandi flokka. Íslenskt samfélag, raðmorð og bókmenntir Eins og nefnt hefur verið eru raðmorð sjaldgæfur glæpur þótt sakamálaþættir, -sögur og -kvikmyndir gefi mögulega annað til kynna og mörg slík morð framin fyrir augum áhorfenda og lesenda á hverju kvöldi um allan heim. Í fjölmennum ríkjum eins og Bandaríkjunum þar sem sirka 336 milljónir búa hefur þessi af- brotahegðun einna mest verið rannsökuð og sett fram sú tilgáta að um þrjú hundruð raðmorðingjar séu þar virkir á hverjum tíma. Þá er talið að þeim fækki stöðugt vegna breyttra skilyrða í samtímanum, farsíma- og samfélags- miðlanotkunar, eftirlitsmyndavéla og eins kunnáttu lögreglunnar við að fanga þá.24 Þótt talan megi virðast há eru raðmorðingjar þó einungis 0.000091 prósent af bandarísku þjóðinni samkvæmt henni. Sé hlutfallið sett í íslenskt samhengi verður líka samstundis ljóst að enginn slíkur leynist hér á landi þar sem íbúa- fjöldinn er rétt undir 400 þúsundum þegar þetta er skrifað. Þar að auki er tíðni morða á hverja 100 þúsund íbúa mun lægri hérlendis en í Bandaríkjunum en samkvæmt Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðingi hafa einungis tvö morð verið framin árlega hér á landi að meðaltali síðustu þrjátíu árin.25 Hafa þau nær öll verið „dæmigerð íslensk morð“ svo notað sé heldur groddalegt tungutak rannsóknarlögreglumannsins Sigurðar Óla úr glæpasögunni Mýrinni (2000) eftir Arnald Indriðason, ýmist ástríðuglæpir eða mál tengd fíkniefnum: „Subbul[eg], tilgangsla[us] og fram[in] án þess að gerð sé tilraun til þess að leyna þ[eim], breyta verksummerkjum eða fela sönnunargögn.“26 Þá vottar geðshræringin og þjóðarsorgin sem fylgdi í kjölfar þess að hin tvítuga Birna Brjánsdóttir fannst myrt í janúar 2017 af manni sem var henni ókunnugur um óraunveruleika slíkra glæpa hér á landi. Málið sló þjóðina sem fylgdist agn- dofa með framvindu þess en Birna hvarf skyndilega úr miðbæ Reykjavíkur og fannst látin rúmri viku síðar við Selvogsvita í Ölfusi. Líkt og afbrotafræðingarnir Helgi Skúlason og Francis Pakes segja í grein um glæpinn þá hefði hann líklegast Behavior 1/2014, bls 1–11, hér bls. 9. 24 Gary Rodgers, „How to Avoid Being Murdered by a Serial Killer“, HuffPost, 3. desember 2016, sótt 16. apríl 2023 af https://www.huffpost.com/entry/how-to-avoid-being-mur- der_b_8707446. Sjá einnig hjá Laurence Miller, „Serial killer. I. Subtypes, pattern, and motives“, bls. 3. 25 Arnar Björnsson, „Tvö manndráp að meðaltali á ári síðastliðin 30 ár“. 26 Arnaldur Indriðason, Mýrin, Reykjavík: Vaka Helgafell, 2000, bls. 12.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.