Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Page 147
PAUl BlOOM
152
þjáningarfullu, tístandi og iðandi dýrinu og hnipruðu sig þar saman, hreyfingar-
lausar.“43
Smábörn bregðast líka stundum við sársauka annarra á sjálfhverfan hátt sem
merkir að hegðun þeirra endurspeglar hvernig þau sjálf myndu vilja að komið
væri fram við þau.44 Sálfræðingurinn Martin Hoffmann lýsti til dæmis því þegar
fjórtán mánaða gamalt barn kom með grátandi vin til sinnar eigin móður en
ekki til móður vinar síns. Hoffman færir rök fyrir því að þessi ruglingur komi til
vegna þess að börn hafi ekki þróað með sér þá vitsmunalegu glöggskyggni sem
þarf til þess að horfa frá sjónarhorni annarra. En í raun og veru getur fólk á
öllum aldri verið sjálfhverft þegar það bregst við uppnámi annarra. Um daginn
sat ég við hlið konu minnar á veitingastað og hún minntist á það hversu þyrst
hún væri. Kurteisislega rétti ég henni bjórinn minn. Hún horfði á mig. Eftir
augnablik áttaði ég mig. Hún hatar bjór. Mér líkar bjór.
önnur birtingarmynd samkenndar sem birtist hjá smábörnum varðar hjálp. Á
síðustu áratugum hafa birst margar frásagnir og rannsóknir sem varpa ljósi á
viljann til að aðstoða án utanaðkomandi krafna.45 Árið 1942 sagði rannsakandi
um son sinn: „Hann er orðinn mjög hugulsamur. Þegar ég kom inn í morgun,
sagði hann, „pabbi þarf inniskó“, og hljóp til að ná í þá.“46 Árið 1966 skrifaði
sálfræðingur að sú átján mánaða „ynni við hlið hans í garðinum og hefði tekist
að nota hrífu eða skóflu fremur vel … Í húsinu hjálpar hún við að ýta ryksug-
unni eða moppa … [og] gerir ráð fyrir þörfum pabba þegar hann klæðir sig og
kveikir eld í arninum.“47 Og annar sálfræðingur sem starfaði á fyrri hluta níunda
áratugarins lýsti því hvernig hún breytti rannsóknarstofu sinni í sóðalegt heimili,
það átti eftir að leggja á borð, búa um rúmið, bækur og spil lágu á gólfinu og
það þurfti að brjóta saman þvott, og svo framvegis.48 Flest börnin sem heimsóttu
rannsóknarstofuna (þau voru á milli átján og þrjátíu mánaða gömul) voru mjög
43 george E. Rice Jr., „Aiding Behavior vs. Fear“, bls. 167. Fyrir frekari umræðu sjá Steph-
anie D. Preston og Frans B. M. de Waal, „Empathy. Its Ultimate and Proximate Bases“,
Behavioral and Brain Sciences 25/2002, bls. 1–71.
44 Martin L. Hoffman, Empathy and Moral Development.
45 Sjá nánar Dale F. Hay, „The Roots and Branches of Human Altruism“, British Journal of
Psychology 100/2009, bls. 473–479.
46 Charles Wilfred Valentine, The Psychology of Early Childhood, london: Methuen, 1942, bls.
321.
47 Joseph Church, ritstjóri, Three Babies. Biographies of Cognitive Development, New York: Ran-
dom House, 1966, bls. 71–72.
48 Harriet L. Rheingold, „Little Children’s Participation in the Work of Adults, a Nascent
Prosocial Behavior“, Child Development 53/1982, bls. 114–125.