Úrval - 01.06.1947, Blaðsíða 2
Gamlir árgangar Úrvals.
AUtaf öðru hverju eru að ber-
ast fyrirspumir frá lesendum um,
hvað til sé af gömlum heftum.
Með því að ætla má, að margir
fleiri vilji fá að vita þetta en
þeir sem spurt hafa, verða hér á
eftir talin upp þau hefti, sem enn
eru fáanleg.
I. árgangur er allur uppseldur.
II. árgangur: Af honum er 1.
heftið uppselt, en hin heftin öll
til, þó aðeins í örfáum eintökum.
III. árgangur fæst allur nema
3. heftið, 1. heftið þó aðeins í ör-
fáum eintökum.
IV. árgangur fæst allur, 1. hefti
þó aðeins í örfáum eintökum.
V. árgangur fæst allur nema 1.
heftið, 4. heftið þó aðeins í fáum
eintökum.
VI. árgangur: Af honum eru
komin tvö hefti, og eru þau bæði
uppseld á afgreiðslunni. En nú
hefir upplagið verið aukið enn
einu sinni, og er því von til, að
næstu hefti, að minnsta kosti,
gangi ekki alveg strax upp.
Næsta hefti.
Lítið hefir enn verið valið af
efni í næsta hefti. Þó má geta
greinar um íþróttir eftir sænska
rithöfundinn Ivar Lo-Johansson:
„Hvers vegna verða foreldrar
okkar aldrei fullorðin?“; grein
um vatnsrækt (ræktun matjurta
i vökva í stað moldar); „Gáfna-
próf“, 55 spurningar í 10 flokkum,
sem gaman er að spreyta sig á.
Loks má nefna bókina: „Tíkin
hans Sam Small", eftir Eric
Knight. lírval hefir áður birt
tvær bækur eftir Eric Knight:
„Yorkshiremaðurinn fljúgandi", og
„Þetta varðar mestu", og munu
báðar vera með vinsælustu bók-
um, sem 'Úrval hefir birt. Hér
hittum við aftur kunningja okkar,
Yorkshiremanninn Sam Small, og
er það trú vor, að flestir lesendur
tírvals muni fagna því að geta
endumýjað kunningsskapinn. Þau
eru sjaldan hversdagsleg æfintýr-
in, sem Sam lendir í, en hann
verður ekki uppnuminn af smá-
munum.
UKVAL tímaritsgreina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri: Gísli Ólafsson, Leifsgötu 16. Afgreiðsla Tjamargötu 4,
pósthólf 365, Reykjavík. Kemur út sex sinnum á ári. Verð kr. 8,50
hvert hefti. Utanáskrift tímaritsins er: tfrval, pósthólf 365, Reykjavík.
Sent til allra bóksala á landinu, og taka þeir við áskriftum. Einnig
er ritið sent til áskrifenda, sem ekki búa í nágrenni bóksala.
ÐIGEFANDI: STEINDÓRSPRENT H.F.