Úrval - 01.06.1947, Blaðsíða 4
2
ÚRVAL
Níundu symfóníunni. Hann
vildi taka allt mannkynið í faðm
sér. Allt mannkynið tók hann
í faðm sér hundrað árum eftir
dauða hans. Og nú, tuttugu ár-
um síðar, er hann ástsælli af
öllum þjóðum heims en nokkru
sinni fyrr.
Dauði Beethovens virðist
hafa verið táknrænn fyrir allt
líf hans. Hann var fimmtíu og
sjö ára og einmana. Sjúkdóm-
ar höfðu bugað þróttmikinn
líkama hans. Úfinn makkinn var
orðinn grár. Þjáningar höfðu
rist hvelft enni hans djúpum
rúnum. Efri vörin virtist stöð-
ugt þekja neðri vörina. Þrótt-
mikil hakan og sterkbyggð
kinnbeinin léðu stórskornu and-
litinu enn meitlaðri svip eftir
að hann var nú orðinn hold-
grennri og fölari. En í augunum
bjó enn hinn forni eldur, dimm-
ur og þrjózkufullur. Hann var
heyrnarlaus; hann var fátækur;
hann var einmana. Þegar hann
lagðist í rúmið, sendi hann Karl,
bróðurson sinn og fósturson,
eftir lækni. Karl lenti inni í
spilavíti á leiðinni og gleymdi
frænda sínum yfir billiardspili.
Hann mundi ekki eftir honum
fyrr en tveim dögum seinna. Og
jafnvel þá lét hann sér nægja
að biðja þjón að senda lækni til
Schwarzspanierhaus, sem stóð
bak við blettinn, þar sem hin
íturfagra Votivkirkja stendur
nú. Þjónninn lofaði því, en
sveik það. Þrem dögum seinna
veiktist þjónninn sjálfur. Hann
var fluttur á sjúkrahús, og þar
minntist hann hins sjúka manns-
ins, sem öllum var gleymdur og
enn beið eftir lækni. Hann tal-
aði við hjúkrunarkonurnar og
bað tvo lækna að líta til hins
sérvitra, heyrnarlausa tónlist-
armanns. Það var vor. Nístandi
vindur þaut um götur Vínar-
borgar, sem voru forugar og
hættulegar yfirferðar. Lækn-
arnir neituðu að fara. Loks þeg-
ar þriðji læknirinn kom til
Schwarzspanierhaus — þar sem
skáldið Lenau hafði einnig lifað
og þjáðst — var það um seinan.
Allt var á rúi og strúi í her-
berginu. Líkami hans var kval-
inn af óþrifum og sál hans af
áhyggjum og kvíða. Fílharmón-
íufélagið í Vín hafði látið hann
fá fyrirframgreiðslu; aðdáend-
ur hans á Englandi sendu hon-
um nokkurt fé. Á þessu hvoru-
tveggja lifði hann síðustu vik-
urnar. Það voru gerðar á hon-
um þrjár skurðaðgerðir — allar
árangurslausar. Hinn 24. marz