Úrval - 01.06.1947, Page 12
10
■CRVAL
þá áfrarn. Stöðugar tilraunir
voru gerðar.
Eftir þriggja ára starf, sem
vafalaust var jafntilbreytinga-
laust fyrir vísindamennina og
sýklana, var tími til kominn að
sannreyna, hve mikill lífsþrótt-
ur væri enn með sýklunum.
Calmette vóg 100 milligrömm
af sýklagróðrinum, og dældi
honum inn í kálf.
Þrjátíu sinnum minna magn
af sýklum eins og þeir voru við
up'phaf tilraunanna mundi hafa
drepið lcálfinn. En honum varð
ekkert meint af þessum stóra
skammti! Enn voru þeir samt
ekki reiðubúnir að nota sýklana
í stórum stíl.
Árið 1920 höfðu þeir flutt
sýklana 230 sinnum frá einu
glasi til annars. Þeir voru nú
aðeins sem skuggi af sjálfum
sér. Þeir voru jafnvel öðruvísi
útlits í smásjánni. Það var ekki
lengur neinn vafi á því að þeir
voru skaðlausir. En var nokkur
vörn í þeim gegn berklaveiki?
Þegar hér var komið var Cal-
mette búinn að gleyma kúnum.
Hann hugsaði nú einungis um
mannfólkið. •
Til fyrstu tilraunanna valdi
hann sér sjimpansa — en þeir
eru skyldastir mönnunum. Til-
raunirnar voru framkvæmdar á
rannsóknarstöð Pasteurstofn-
unarinnar í frönsku Vestur-
Afríku. Þrem skömmtum af
Bacillus Cdlmette-Guerin —
skammstafað BCG — var dælt í
þrjá sjimpansa, og síðan voru
þeir settir í búr með fimm öðr-
um, sem veikir voru af berklum,
og sjö heilbrigðum. Eftir 15
mánuði voru allir veiku aparnir
dauðir. Fjórir af þeim sjö, sem
heilbrigðir voru í upphafi voru
einnig dauðir. En þeir þrír, sem
fengið höfðu bóluefnið, báru
engin merki um berklaveiki!
Calmette var nú reiðubúinn
að hef ja bólusetningu á börnum
— þó með fullri varkárni. Að-
varanir bárust úr ýmsum átt-
um. Hvernig gat hann vitað
nema sýklarnir yrðu banvænir,
þegar þeir kæmu inn í barns-
líkamann, þó að þeir væru veik-
ir og skaðlausir áður? Því gat
hann engu svarað. Hann vissi
það ekki. En Calmette hóf
ótrauður tilraunirnar.
Verst af öllu var, að ógeriegt
var að flýta fyrir tilraununum.
Fyrstu tilraunirnar bentu til að
árangurinn yrði jákvæður —
bóluefnið örvaði raunveruiega
varnarmátt blóðsins gegn berkl-
um. En ekki var þar með sagt,