Úrval - 01.06.1947, Page 13
BCG — BANABITI HVlTA DAUÐANS ?
11
að bólusett fólk gæti aldrei dáið
úr berkium. Það var ekki annað
að gera en bíða — í 10, 20, 30
ár.
En svo vildi til hræöilegt
óhapp. Heilbrig'ðisstjórnin í
Liibeck í Þýzkalandi ákvað að
láta bólusetja stóran hóp barna
með BCG. Áður en nokkrum
varð ljóst, að ekki væri allt með
felldu, var búið að bólusetja 249'-
börn. Berklar blossuðu upp í
þeim nærri öllum og 75 þeirra
dóu.
Bóluefninu var kennt um
þessi hræðilegu mistök. En brátt
kom sannleikurinn í ljós. Starfs-
maður á rannsóknarstofunni
hafði af vangá blandað fuíl-
frískum berklasýklum saman
við hina veikluðu sýkla Cal-
mettes. Þó að BCG væri þannig
enganveginn um að kenna ó-
happið í Liibeck, fekk það slæmt
orð á sig.
En Calmette hélt áfram að
bólusetja — allir sem vildu gátu
Iátið bólusetja sig hjá honum,
hann gat ekki fengið sig til að
neita neinum. Strangvísindaleg-
ir læknar hristu höfuðið yfir
slíkum aðferðum. Hvernig gat
hann nokkurn tíma sannað gildi
bóluefnisins með því móti? Til
að fá ótvíræðar niðurstöður
varð hann að hafa tvo hópa
manna, og væri annar bólusett-
ur, en hinn ekki. í hvorum hópi
þyrftu að vera þúsundir manna.
Ef svo kæmi í ljós, eftir t. d. 10
ár, að í bólusetta hópnum væri
snöggtum færri berklaveikir,
væri fengin sönnun fyrir gagn-
semi bóluefnisins. En Calmette
var ekki þannig gerður, og þeg-
ar hann dó 1933, var notagildi
BCG því enn ósannað mál.
Tilraununum var samt haldið
áfram, og nú með strangvís-
indalegri aðferðum. Á nokkrum
berklahælum í Saskatchewan í
Kanada kom í ljós, að 60%
hjúkrunarnemanna tóku smit
meðan á námstímanum stóð.
Hér var gullvægt tækifæri fyrir
BCG. Ef það gat varið hjúkr-
unarnemana, sem umgengust
berklasjúklinga daglega, gegn
berklum, var fengin ótvíræð
sönnun fyrir ágæti þess. Rann-
sóknarráð ríkisins gekkst fyrir
því, að 1005 hjúkrunarnemar
voru bólusettir, og annar álíka
hópur, óbólusettur, var hafður
til samanburðar. Niðurstaðan
varð sú, að í hópi hinna bólu-
settu fengu fjórum sinnum
færri berkla en í hinum hópn-
urn.
Þessar tilraunir í Kanada
2*