Úrval - 01.06.1947, Page 18

Úrval - 01.06.1947, Page 18
16 TjRVALi kjötsúpu með tvenns konar hveitibollum og piparrótarsósu út á kjötið — til heiðurs gest- inum. Nú sátum við í vinnustofu húsbóndans og reyktum og lét- um fara vel um okkur. — Það væri annars nógu gaman að fá svolítinn andblæ að heiman núna, sagði húsbóndinn og tók að fást við útvarpstækið. Því miður er hreint ekki auðvelt að ná sambandi við okkar kæra föðurland á daginn — þótt und- arlegt sé, því að við erum ann- ars ekki ljósfælin þjóð, Danir. — Reyndu þá á stuttbylgj- um, sagði húsfreyjan. Þar er kannske auðveldara að ná í ykk- ur — þið eruð hvort sem er smábændaþjóð! Hann sneri hnöppunum fram og aftur. Undarleg hljóð heyrð- ust öðru hvoru — brot úr jass- lagi frá London, nokkur nas- hljóð frá Königswusterhausen. Stundum bárust hljóð utan úr sjálfum himingeimnum: stuttar ýlur klufu loftið og fóru eins og kuldaleiftur niður eftir bak- inu á mér. En allt í einu leið dillandi mjúkt danslag út úr tækinu, smeygði sér blíðlátt inn í brjóst manns — og hvarf á samri stundu. — Þarna var Danmörk! sagði húsbóndinn og var ákaf- ur. Hann leitaði vandlega á þeim stað, sem lagið hafði heyrzt, og nokkrum sinnum náði hann í töframjúka vals- tónana, en aðeins andartak, svo hurfu þeir aftur. Loks heyrðist ekkert meir, og meðan húsbónd- inn hélt árangurslaust áfram að leita og tautaði meinlaus blóts- yrði fyrir munni, eins og aðeins Danir geta, barst ég með vals- tónunum aftur í tímann, unz ég staðnæmdist heima á strönd bernskunnar. Ég sat við hlöðuvegginn og gerði mig lítinn — svo að eng- inn kæmi auga á smaladrenginn og ræki hann í rúmið. Því það voru töðugjöld og hlöðugólfinu hafði verið breytt í dansgólf. Á borði sat ungur steinhöggvari og lék á fiðlu og fólkið dansaði svo að allt snerist fyrir augun- um á mér. Húsbóndinn sveifl- aði Karólínu, litlu, þriflegu elda- buskunni, sem alltaf var með ótal spékoppa í andlitinu, f jósa- drengurinn dansaði við ungu húsmóðurina — að hann skyldi þora það! Hann sleppti henni ekki, og þegar lagið loks hætti, tók hann af sér húfuna og vatt hana, svo að svitinn draup úr henni á gólfið!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.