Úrval - 01.06.1947, Qupperneq 38
36
ÚRVAL
vegna stöðugrar blóðblöndunar
við hvíta menn.
Flutningur á þrælum frá
Afríku var bannaður árið 1808.
Öldina þar áður höfðu um 335-
500 negrar verið fluttir til
landsins. Flestir vísindamenn
eru þeirrar skoðunar, að í mesta
lagi 10 af hundraði þeirra 13
miljóna, af íbúum landsins,
sem í dag eru taldir negrar,
séu af jafnhreinu negrakyni og
þeir sem fluttir voru frá Afríku;
og enginn vísindamaður telur
þá fleiri en 30 af hundraði. Ef
negrablóðið hefir blandast svo
mikið á undanförnum 200 ár-
um, er þá nokkur f jarstæða að
ætla, að áframhaldandi blönd-
un næstu tvær aldir verði þess
valdandi, að ekki verði hægt að
þekkja negrana frá hvítum
mönnum? Ef negrarnir hefðu
engin líkamleg sérkenni yrði ó-
mögulegt að viðhalda ofsóknum
gegn þeim til lengdar. Þeir hafa
engin sérstök trúarbrögð eða
menningu, sem skilur þá frá
öðrum íbúum landsins.
Blóðblöndun hefir átt sér stað
allt frá því að fyrstu negrarnir
komu til Ameríku. Flestir þeirra
komu úr frumskógum Afríku,
en nokkur hluti kom frá Vestur-
Indíum, þar sem kynblöndun
hafði þegar átt sér stað. I upp-
hafi þrælasölunnar var enn
nokkuð af Indíánum í Suðaust-
urríkjunum, og allmikil blönd-
un átti sér stað með þeim og
negrunum. Strokuþrælarnir leit-
uðu oft hælis hjá Indíánunum,
þar sem þeir fengu góðar við-
tökur og var tekið sem jafningj-
um.
1 þann mund er þrælahaldið
og plantekruskipulagið var
komið í fastar skorður í Suð-
urríkjunum, hófst kynblöndun
af öðru tagi: Plantekrueigend-
urnir byrjuðu að taka sér fal-
legar negrastúlkur að frillum.
Það er gömul hjátrú, að kyn-
blendingur sameini í sér verstu
einkenni beggja kynþátta. Þetta
er auðvitað rangt. Hann verð-
ur því aðeins undirmálsmaður,
að foreldrarnir séu af úrkasti
beggja kynþáttanna. En hér
voru það aðalsmenn en ekki
öreigar, sem tóku sér að frill-
um fallegustu og gáfuðustu
negrastúlkurnar. Börn þeirra
urðu því meira en í meðallagi
að atgervi. Margir af núverandi
forustumönnum negranna eiga
ætt sína að rekja til þessara
kynblendinga. Á þeim tímum
var það líka algengt, að beztu
ambáttirnar væru látnar geta