Úrval - 01.06.1947, Qupperneq 39
NEGRAVANDAMÁLIÐ 1 LJÓSI MANNFRÆÐINNAR
37
börn með hvítum mönnum, því
að kynblendingabörn voru í
hærra verði en negrabörn.
1 þrælastríðinu og fyrstu ár-
in á eftir varð kynblöndunin
mikil. En eftir að jafnvægi var
komio á, og þrælahaldið sem slíkt
var úr sögunni, fór kynblöndun-
in að minnka. Hjónabönd hvítra
manna og negra eru bönnuð að
lögum í 29 af hinum 48 ríkjum
Bandaríkjanna, og jafnvel þar
sem þau eru leyfð að lögum eru
þau mjög sjaldgjæf. Allmikil
kynblöndun á sér þó stað utan
hjónabands, en nálega ein-
göngu milli hvítra karlmanna
og svartra kvenna.
Til huggunar þeim sem óttast
um hreinleik hvíta kynstofns-
ins skal á það bent, að þegar
kynblöndun á sér stað, er það
nálega eingöngu negrakyn-
stofninn sem verður fyrir blönd-
uninni. Það er mjög lítið negra-
blóð sem berst inn í hvíta kyn-
stofninn, því að barn hvíts
manns (eða konu) og manns
(eða konu) með negrablóð í æð-
um er talið negri, jafnvel þó að
negraforeldrið sé aðeins negri
að einum áttunda og barnið sé
ljóst á hár og hörund. Ofstækis-
menn hrópa hátt um það, að
negrablóð muni berast inn í æð-
ar hins hvíta kynstofns, en það
er einmitt hið gagnstæða, sem
á sér stað. Hvítar konur geta
nálega eingöngu börn með hvít-
u m mönnum. Það er því engin
bein innblöndun af blóði frá
„lægri“ kynþættinum til hins
,,æðri“. Aftur á móti geta all-
margar negrakonur börn með
hvítum mönnum. Þessir hvítu
menn eiga eftir sem áður börn
með hvítum konum, en barn
sem negrakona elur með hvít-
um manni kemur hins vegar í
stað hreins negrabarns, sem
konan hefði að öðrum kosti get-
að átt. Þannig f jölgar kynblend-
ingum á kostnað negranna frek-
ar en á kostnað hvítra manna.
Samkvæmt lögmálum kynblönd-
unar hefir hinn ráðandi kyn-
stofn óumflýjanlega tilhneig-
ingu til að vaxa á kostnað hins
veikari kynstofns og útrýma
honurn að lokum.
En, spyrja menn, ef kynblönd-
unin er í rénun, hvernig geta
mannfræðingar þá fullyrt, að
negrakynstofninn muni halda
áfram að lýsast?
Meginástæðan er sú, að negr-
arnir hafa skapað með sér
stéttaskiptingu. Þær negra-
stúlkur sem eru ljósar á hörund
og hafa andlitsfall hvítra