Úrval - 01.06.1947, Page 56

Úrval - 01.06.1947, Page 56
5i ÚRVAL 2500 málverkum, sem Corot gerði, eru 7800 í Ameríku.“ Aðrir gagnrýnendur nefna dæmi, allt frá hinum tveim út- gáfum af málverki Gains- boroughs „Blár drengur," sem vöktu alheims athygli, til fals- aranna, sem uppvíst varð um í París fyrir nokkru, og falsað höfðu málverk eftir Picasso og Utrillo í tugatali. „Málverk, sem fyrr og síðar hafa verið keypt í þeirri trú, að þau væru eftir Rembrandt,“ segir dr. M. Toeh, amerískur listfræðingur, „eru allt að tífalt fleiri en öruggt má telja að Rembrandt hafi getað málað, og að því er snertir aðra gamla meistara, er munurinn enn meiri. Til dæmis eru til 2000 málverk tileinkuð Van Dyck, en þar af hefur hann sennilega ekki málað nema 70.“ Stuðningsmenn Van Meeg- erens segja, að úr því að hon- um hafi tekizt svona vel að falsa þessi málverk, sé hann tvímælalaust listamaður á sínu sviði. Þeir benda á, að hann hafi ekki gert eftirlíkingu af neinu listaverki Vermeers, heldur skapað ný listaverk í anda og stíl hins gamla meistara. Þeir kalla þetta ,,skapandi“ fölsun í Hollandi, og þeir segja, að það sé ekki glæpur, heldur list, og að Meegeren sé ef til vill mesti listamaður á þessu sviði, sem uppi hafi verið í heiminum. Hans Van Meegeren er 58 ára að aldri. Hann byrjaði fyrir alvöru að mála, þegar hann var í menntaskóla. Um 1920 var hann orðinn allþekktur. Fyrstu árin eftir 1930 fékkst hann all- mikið við að mála mannamynd- ir, einkum af enskum aðals- mönnum og amerískum auðkýf- ingum suður við Miðjarðarhafs- strönd. Um þessar mundir hófst hin harða barátta hans við hol- lenzka gagnrýnendur og starfs- bræður. List hans fann ekki náð fyrir augum þeirra, en Meeger- en segir, að þeir hafi öfundazt yfir fjárhagslegu gengi hans. Dró að lokum til fulls fjand- skapar, og árið 1936 hugði Mee- geren á hefndir. Hann undirbjó vandlega hina væntanlegu blekkingarstarfsemi sína. Eftir að hafa kynnt sér hina gömlu meistara með það fyrir augum að stæla einhvern þeirra, valdi hann Vermeer. Hvers vegna Vermeer? „Af því að ég hafði mikið dálæti á hon- um,“ segir hann nú. „Stíll hans
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.