Úrval - 01.06.1947, Síða 64
62
ÚRVAL
tímabæru spumingu, hvort
geislamagn jarðarinnar geti
ekki aukizt svo mikið að hætta
stafi af, ef kjarnorkan verður
nýtt í stórum stíl, og hvort ekki
væri rétt að banna stórfelda
kjamorkuframleiðslu af þeirri
ástæðu.
Hættan á því, að ár, lækir og
loftið umhverfis stór kjarn-
orkuver geislamagnist, er
ótvíræð.... Bale leggur einnig
áherzlu á, að ekki verði hjá því
komizt að taka tillit til þeirra
geislaverkana, sem mannfólkið
kann að verða fyrir, þegar gerð-
ar eru framtíðaráætlanir um
hagnýtingu kjarnorkunnar."
Þetta þýðir með öðram orð-
um, að hvað snertir stórfelda
hagnýtingu kjamorkunnar, er-
um við á þessu stigi málsins
eins settir og fáfróðir villimenn,
sem leika sér að dýnamithylkj-
um. Og jafnvel enn ver, því að
við erum ekki aðeins að búa
sjálfum okkur tjón, heldur öll-
um komandi kynslóðum — ef
þær koma.
Aðrar dýrategundir hafa dáið
út, af því að átt hafa sér stað í
stofninum skaðlegar stökk-
breytingar, sem hafa valdið því,
að þær gátu ekki lagað sig eft-
ir umhverfinu — eins og t. d.
risaeðlurnar. Það er enganveg-
inn óhugsandi, að ógætileg
notkun kjarnorkunnar geti
orðið til þess, að við förum
sömu leiðina.
k ★ -k
Prófraun.
Hvernig kveikir þú á eldspýtu ? ... Hvernig' horfirðu á neglum-
ar á þér .. . Ef þú ert beðinn að horfa út í hom i herberginu,
hvemig gerirðu það ? ... Hvemig drekkurðu úr vatnsglasi ? ...
Reyndu þetta á sjálfura þér og vinum þínum; það leiðir í ljós,
hvort þú ert karlmannlegur eða kvenlegur í þér.
Kvenfólk kveikir á eldspýtu með því að strjúka henni frá sér
eftir stokknum; en karlmenn strjúka henni að sér.
Þegar kvenfólk skoðar á sér neglumar, horfir það á alla
höndina; karlmenn loka lófanum og horfa aðeins á neglumar.
Flest kvenfólk lítur kringum sig í herberginu áður en það lítur
í hornið. Karlmenn horfa beint út I hornið.
Kvenfólk horfir yfir glasið, á eitthvað eða einhvern, sem er
andspænis þeim. Karlmenn horfa ofan i glasið.
— The Universe.