Úrval - 01.06.1947, Page 70
68
ÚRVAL
ekki kæmi ríkinu við. Á síðustu
hundrað árum hefir það hlotið
almenna viðurkenningu, að
þetta hvorttveggja og margt
fleira sé hlutverk ríkisins.
Þess hefir orðið vart, einkum
hjá þeim, sern beint eða óbeint
hafa orðið fyrir áhrifum frá
Hegel, að þeir líti á ríkið sem
eins konar guðdóm, er sé hátt
yfir borgarana hafinn og þeir
eigi að hlýða í auðmýkt. Þetta
er heimspekilegur þvættingur.
Ríkið er raunverulega hópur
einstaklinga, sem af einhverri
ástæðu hefir verið falið meira
vald en almennt gerist. Vel er
hugsanlegt, að hagsmunir þess-
ara einstaklinga rekist á hags-
muni almennings, og einmitt af
þeim sökum er nauðsynlegt að
frelsi einstaklingsins sé örugg-
lega tryggt.
Allar stofnanir hafa tilhneig-
ingu til að vaxa og færa út kví-
arnar og ríkið er þar engin und-
antekning. Það er því óumflýj-
anlegt, að ríkið leggi undir sig
æ fleiri verksvið, sem áður voru
í höndum einstaklinga. Það er
einkum á sviði efnahagsmál-
anna, sem þessi tilhneiging rík-
isvaldsins til ao færa út kvíarn-
ar hefir vakið athygli og deilur.
En í raun og veru er hér um að
ræða miklu víðtækari tilhneig-
ingu, sem snertir öll valdsvið,
einkum þó í stjórnmálum og
áróðri. En jafnvíst og það, að
sterk rök mæla með aukinni
efnahagsstarfsemi ríkisins, er
hitt, að engin tilsvarandi ástæða
er til þess að óska eftir yfir-
völdum, sem eigi að ráða skoð-
unum manna.
1 frjálslyndu lýðræðisríki
eins og hér hjá okkur, hliðrar
ríkisvaldið sér, fyrir áhrif al-
menningsálitsins, hjá því að
beita valdi á ýmsum sviðum,
sem það gæti hæglega komið
við, ef skoðanafrelsið væri ekki
jafnrótgróið og raun ber vitni.
Það gæti til dæmis krafizt þess,
að allir kennarar í skólum ríkis-
ins styddu stjórnarflokkinn,
það gæti á meðan núverandi
pappírsskortur ríkir neitað
stjórnarandstöðunni um pappír
í blöð eða bækur, þar sem ráð-
ist væri á stefnu stjórnarinnar.
Þetta er gert í mörgum löndum
með afleiðingum, sem að mínu
áliti eru mjög skaðlegar.
En það er mjög varhugavert
að treysta á mátt hefðarinnar,
því að ef hefðbundnar skoðanir
eru ekki studdar af stofnunum,
er hætt við að þær tapi fylgi.
Mest hætta stafar frelsinu af