Úrval - 01.06.1947, Síða 82
Er ofdrykkja ólceknandi?
Grein úr „Magazine Digest“.
ETTA er eftirmáli að „Glöt-
uðu helginni.“
Kvikmyndin var saga um of-
drykkjumann sem fór á túr og
glataði einni helgi. Sagan end-
aði vel, að minnsta kosti var
áhorfendunum gefið í skyn að
allt færi vel. Hvers vegna? Af
því að maðurinn hafði að lokum
ákveðið að hætta að drekka, og
virtist vera læknaður af of-
drykkjunni.
Ef sagan væri í samræmi við
reynsluna, hefði maðurinn átt
að „læknast", ekki einu sinni,
heldur mörgum sinnum. Fram-
hald sögunnar hefði orðið eitt-
hvað á þessa leið:
Eftir að hann hafði „sigrast“
á drykkjufýsn sinni bragðaði
hann ekki dropa af áfengi í
heilt ár, og hældi sér af því við
vini sína, að nú væri hann ör-
uggur. Dag nokkurn kom hann
ekki til vinnunnar. Konan hans
vissi ekki hvar hann var. Nokkr-
um vikum seinna fann einhver
hann í herbergiskytru á lélegu
Úrval hefir áður birt tvær grein-
ar um ofdrykkju. Hér birtist þriðja
greinin um þetta mikla vandamál.
Hún er tilraun til að skýra orsakir
ofdrykkjunnar, auk þess sem hún
rekur þrjár helztu aðferðirnar við
lækningu hennar, kosti þeirra og
galla. Segja má að hún sé ekki bjart-
sýn, en mörgum mun finnast, að
reynslan gefi lítið tilefni til bjartsýni.
hóteli. Þar lá hann í rúminu,
haldinn drykkjumannaæði.
Þegar búið var að koma hon-
um til réttrar rænu, raka hann
og þrífa fötin hans, fullvissaði
hann konuna sína um, að nú
hefði hann að lokum fengið
ráðningu sem dygði. Hann
skyldi gangast undir læknisað-
gerðina aftur, og í þetta sinn
strangari en í fyrra skiptið, og
að sér yrði áreiðanlega ekki
skotaskuld úr að fá atvinnu aft-
ur. Það tókst. Hann fekk lægri
laun en hann hafði haft áður en
hann hrasaði, og enn lægri en
launin sem hann hafði haft þar
áður. En hann vann af kappi.