Úrval - 01.06.1947, Blaðsíða 88
86
TJRVAL
raunverulega vandamál hans sé
ekki drykkjufýsnin, heldur ein-
hverjir aðrir erfiðleikar, sem
hann reynir að sigrast á með
aðstoð áfengisins, að ofdrykkj-
an sé mörgum handhægt tæki
til að komast hjá að horfast í
augu við erfið vandamál.
Ungur lögfræðingur, sem fann
að hann gat ekki staðið í stöðu
sinni, fór að drekka til þess að
komast hjá því að þurfa að
horfast í augu við þessa stað-
reynd. Annar ofdrykkjumaður
notaði áfengið til að reyna að
flýja fjárhagsáhyggjur.
Sumir nota áfengi til að sigr-
ast á feimni. Maður nokkur varð
drykkjumaður af því að hann
drakk alltaf áfengi áður en
hann fór út með stúlku. Gleymt
atvik frá barnæsku hafði vakið
hjá honum leyndan ótta við
kvenfólk, en ef hann „fann á
sér“, fundust honum allir vegir
færir.
Fyrir slíka menn — og tauga-
læknar segja að í öllum of-
drykkjumönnum sé einhver slík
sálræn veila — er sálræn lækn-
ing nauðsynleg, þvi að hún ein
getur komizt fyrir rætur meins-
ins.
Gallinn er hins vegar sá, að
sálrænar lækningar eru dýrar
og taka langan tíma — nokkra
mánuði, þegar bezt lætur. Auk
þess taka þær ekki tillit til
efnastarfseminnar, hins já-
kvæða næmleika, sem langvar-
andi áfengisneyzla skapar. Sem
dæmi má nefna ungan mann,
sem varð ofdrykkjumaður
vegna afbrýðissemi út af vel-
gengni bróður síns. Með sál-
könnun var honum sýnt fram á,
hver væri orsökin að drykkju-
skap hans. En hann hélt áfrarn
að drekka þrátt fyrir það.
Hvers vegna ? Af því að jákvæð-
ur næmleiki fyrir áfengi hafði
skapast í líkama hans.
3. Vakin óbeit með uppsöl-
um. Þessi aðferð er sú eina, sem
vinnur beint gegn hinum já-
kvæða næmleik. Hún er aðeins
framkvæmd á sjúkrahúsum, og
er í því fólgin að sjúklingnum er
gefið lyf, sem veldur uppköst-
um. Því næst er honum gefið
áfengi. Þetta er gert á hverjum
degi í lengri tíma, og að lokum
setur undirvitund sjúklingsins
neyzlu áfengis ósjálfrátt í sam-
band við uppköst.
Þetta er því ekki einungis sál-
ræn lækning (hún leitast auðvit-
að jafnframt við að vekja and-
lega óbeit) heldur er hún við-
leitni til að telja líkamanum trú