Úrval - 01.06.1947, Side 101
ADAM
99
hér?“ spurði Adam. „Ég þarf að
tala við herra Adam.“
„Hér ræður enginn sérstak-
ur,“ sagði Hómer, „en ég er
Adam.“
„Nú, það er einmitt ástæðan
til komu minnar,“ sagði Phelps-
Smythe. „Þessvegna sendi her-
inn mig.“ Hann kynnti sig með
nokkru yfirlæti, benti rneð hold-
ugum fingri á Hómer, og sagði:
„Héðan í frá eruð þér undir
vernd herstjórnarinnar. Kipp
hershöfðingi er persónulega
ábyrgur fyrir öryggi yðar, og
ég er persónulega ábyrgur gagn-
vart Kipp hershöfðingja.“
Hann blíndi á okkur Blandy
eins og hann hefði bjargað
Þlórner úr bráðum háska, er við
hefðum búið honum.
„PIvernig,“ spurði ég, „hyggst
herstjórnin vernda herra
Adam?“
„í fyrsta lagi,“ sagði Phelps-
Smythe, „hefir herforingjaráðið
ákveðið, með tilliti til þjóðar-
hagsmuna, að herra Adam skuli
teljast þýðingarmikil, hernaðar-
leg eign. Herforingjaráðið
neyddist til að taka þessa
ákvörðun með landvarnir fram-
tíðarinnar í huga.“
„Hómer horfði á herforingj-
ann með góðlegum, bláum aug-
um og sagði: „Ég vil ekki láta
vernda mig. Ég vil fá að vera í
friði hjá Mary Ellen og barn-
inu.“
Phelps-Smythe lagði höndina
á öxl Hómers. „Mundu það, góði
minn,“ sagði hann, „að hér er
um hag þjóðarinnar að tefla. Þú
ert hernaðarleyndarmál eins og
kjarnorkusprengjan. Auk þess
verður séð fyrir konu þinni og
barni, meðan þetta alvarlega
ástand varir. Samskot eru þegar
hafin.“
„Ég yfirgef hvorki Mary
Ellen né barnið!“ sagði Hómer
ákveðinn. „Mér dettur það ekki
í hug!“
„Þú þarft ekki að fara strax,
ekki fyrr en málið kemur til
kasta þingsins. Herforingjaráð-
ið hefir aðeins úrskurðað þig
hernaðarlega þýðingarmikinn.
Hermálaráðuneytinu hefir verið
falið að gæta þín, og yfirfor-
ingja mínum var veitt starfið.
En það er á valdi þingsins að
ákveða, hvað endanlega skuli
við þig gert.“
Hómer var bæði ruglaður og
magnlaus. „Ég skil,“ muldraði
hann.
„Ég kalla þig sleppa vel,“
sagði ofurstinn. „í fyrstu ætluð-
um við að geyma þig hjá gull-