Úrval - 01.06.1947, Page 102
100
ÚRVAL
inu í Knox-virki. En jrfirher-
læknirinn taldi, að heilsa þín
myndi bíða tjón af því. Ég er
líka kominn á sömu skoðun,
eftir að ég hefi séð þig.
Ég fór með næstu Iest til
borgarinnar. Ég hitti Pogey í
skrifstofu hans og sagði hon-
um, að herinn hefði tekið Adam
að sér, og að hlutverki mínu í
Tarrytown væri lokið. Ég bætti
því við, að ég sárvorkenndi
Hómer Adam.
„Þú vorkennir honum enn
meira,“ sagði Pogey, „þegar þú
sérð, hvað gert verður við hann
í Washington."
„Hvað stendur til?“ spurði
ég.
„Þú hefir ekki getað fylgzt
með því, sem er að gerast,“
sagði Pogey. „Það er togstreita
milli Rannsóknarráðs ríkisins
og þeirra manna, sem standa
að Endurfrjóvgunaráætluninni
— báðir aðilar vilja fá Adam.“
„Hvað áttu við með orðinu
„fá“?
„Báðar stofnanirnar hyggjast
nota hann til þess að koma af
stað fæðingum á nýjan leik. Þær
eru með margskonar áform á
prjónunum.“
„Veslings Adam!“
„Sagan er ekki nema hálf-
sögð. Það er líka togstreita milli
þingsins og milliþinganefndar
um úrslita yfirráð yfir Adam.
Svo er líka talsvert f jölmennur
hópur mann, sern telur Adam
fremur alþjóölegt en innlent
vandamál, og álítur, að það
beri að afhenda hann Samein-
uðu þjóðunum.
Ég ofkældist í kuldakasti í
desember og lá rúmfastur í
nokkra daga. María Ostenheim-
er kom að heimsækja mig, og í
fylgd með henni var dr. Thomp-
son, kunningi minn frá Þleilsu-
verndarstöðinni. Mér hafði ekki
verið kunnugt um að þau þekkt-
ust.
„Við erum í sömu nefnd,“
sagði María. Þau voru nýkomin
frá Washington. Þau voru
bæði ákveðnir talsmenn gervi-
frjógvunaraðferðarinnar.
„Ég er nýbúin að segja hin-
um ágætu stjórnmálamönnum
okkar,“ sagði María, „að eina
von mannkynsins byggist á
gervifrjóvgun. Með gervifrjóvg-
un er að minnsta kosti hægt að
tryggja næstu kynslóð takmark-
aða tölu karlmanna."
„Getið þið hugsað ykkur,“
sagði ég, „að gervöll veröldin
verði byggð rauðhærðum rengl-
um eins og Hómer Adam?“