Úrval - 01.06.1947, Side 112
110
TJRVAL,
Ijóst, að fólk deyr daglega, og
enginn fæðist — að minnsta
kosti ekki hér í Bandaríkjunum.
Við vitum ekki um fæðingar
í Rússlandi. Endurfrjóvgunar-
áætlunin hefir ekki einungis
brugðizt að því leyti, að ekkert
barn hefir verið getið — þrátt
fyrir nægan fjárstyrk — heldur
hafa engin áform verið birt um
framtíðarnot herra Adams.
Stjórnin leyfir jafnvel herra
Adam að umgangast kvenfólk
— ég hefi sjálf séð hann að
drykkju með alræmdri leikkonu.
Og ég hefi það fyrir satt, að
hann sé samvistum við konu að
staðaldri."
„Er þetta ekki voðalegt,"
sagði Marge.
„Nei, svaraði ég. „Mér finnst
þetta ágætt. Hann býr bara með
konu sinni.“
Fay sagði ennfremur, að End-
urfrjóvgunaráætlunin væri ekk-
ert annað en stórfellt svindil-
brask. Adam fengi að leika sér
á kostnað skattgreiðenda. Hún
taldi það misráðið, að taka
Adam undan verndarvæng her-
stjórnarinnar, og sagði það
skoðun sína, að hér væri um
skemmdarstarfsemi að ræða,
sennilega að undirlagi erlendrar
þjóðar.
Nýr og kvíðvænlegur orð-
rómur tók að berast um landið.
Iiann kom fyrst fram opin-
berlega í Washingtonblaðinu
Star. Star hóf máls á þá leið, að
það hefði ávallt verið málgagn
heimila og hjúskapar og and-
stæðingur spillingar og sjúk-
dóma. En það hafði á sínum
tíma krafist þess, að viðhlítandi
ráðstafanir yrðu gerðar til að
vernda hinar dýrmætu uran-
iumbirgðir, er verið var að
framleiða kjarnorkusprengjuna.
Adam væri miklum dýrmætari
en uranium, og hann væri meira
af skornum skammti en það
efni. — Star bar fram þá fyrir-
spurn, hvort stjórnin væri að
gera skyldu sína við ókomnar
kynslóðir, með því að leyfa
Adam og konu hans að búa und-
ir sama þaki — sennilega sofa
í sama rúmi.
Daginn eftir voru blöðin full
af bréfum frá lesendum —
mestmegnis kvenfólki — sem
andmælti því eindregið, að frú
Adam byggi hjá manni sínum.
Hómer og Mary Ellen var
auðvitað ekki ókunnugt um það,
sem á gekk, og þau voru bæði í
slæmu skapi. Ég ók þeim upp í
sveit í bifreið, sem var á veg-
um Endurfrjóvgunar-áætlunar-