Úrval - 01.04.1974, Page 51

Úrval - 01.04.1974, Page 51
HVAR ER FJALL BOÐORÐANNA TÍU? 49 vísindamenn veraldarinnar hafa hugsað sér, meðan aldirnar liðu? Ég finn, að ekki er hægt um vik að breyta erfikenningu 16 alda. Þar skiptir eiginlega minnstu, hversu trúverðugar og rökstuddar kenningar vísindanna verða. Enn mun þetta fjall, sem er að hverfa úti við sjóndeildarhringinn, verða flestum „tindur hinna tíu boðorða Guðs“. Har E1 varð líka að orði: „Sextán aldir eru langur tími, mjög langur tími,“ og það kenndi ofurlítillar beiskju í röddinni. ÁN Sýklarnir komu með blómunum. Smitun af bakteríusjúkdómum er oft mikið Vandamál á spítölum. í leit þeirri og rannsóknum, sem fram hafa farið til að finna orsakir hafa David Taplin og Petricia Mertz við háskólann í Miami til dæmis athugað blómavasa á stöðum, þar sem sjúklingar verða sérstaklega fyrir smitun — en það eru skurðstofur og sjúkrastofur, þar sem sjúklingar með brunasár hafast við. Þau komust að raun um, að þrem dögum eftir að blómin höfðu verið sett í vasana með tárhreinu vatni, innihélt vökvinn ógrynni baktería og þar á meðal sex tegundir þeirra sóttkveikja, sem valda smitun í sjúkrahúsum, og helmingur þeirra standast súlfalyf. Enn- fremur kom í ljós, að veirurnar í sárum smitaðra aðgerðarsjúk- linga voru einmitt þær, sem þrifust í næstu blómavösum. Hins vegar sýndi það sig, að vasar fylltir vatni en ekki blómum voru nær lausir við bakteríurnar. Vísindamennirnir töldu því víst, að utanaðkomandi bakteríur hafi borizt inn á sjúkrahúsið á blómunum. Plönturnar bæta sem sagt í vatnið efnum, sem gera það nokkurs konar klakstöð fyrir bakteríur, sem þegar eru komnar inn í spítalann með eða í lík- amsvefjum sjúklinganna. Þeir komast að við snertingu frá hönd- um sjúklinga, sem skipta á blómum og snerta þau kannski á kló- setti eða við þvottaskál. „Þannig berast veirurnar um allt í sjúkra- stofunni, sem verður þeim vermireitur og gróðrarstía," segja vís- indamenn þessir, og bæta við: „Það ætti ekki að bera blóm inn í sjúkrastofur til að skapa þessa áhættu, þótt hins vegar megi mæla með þeim annars staðar, þar sem hættan er minni fyrir sjúklingana. Þau eru bæði til yndis og fegurðar.“ Þetta mundi því ekki þýða bann við blómum í sjúkrastofum yfirleitt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.