Úrval - 01.04.1974, Page 113

Úrval - 01.04.1974, Page 113
ÁSTKONUR BYRONS 111 inn Lord Melbourne, gerður að for sætisráðherra í stjórn Viktoriu Eng landsdrottningar, og síðar varð hann hennar umsjónarmaður og einkaráðgjafi. Sennilega lýsir hann þessu bezt á hinn stuttaralega hátt mælsku sinnar, hvort sem hann á þar við Caroline og Byron eða Caroline og sjálfan sig. En þar segir hann: „Hvorki maður eða kona verða nokkurs virði, fyrri en þau hafa uppgötvað, að þau eru kjánar. Það er fyrsta skrefið til að verða virð- ingarverður og viðfeldinn. Fyrr en það spor er stigið, er allt vonlaust.“ Caroline Lamb hafði legið fimm ár í gröf sinni, þegar Teresa Guicc- ioli greifafrú kom fyrsta sinni til Englands. Sé reiknað með. að Caro line hafi verið fyrsta unnusta By- rons, má telja Teresu hina síðustu. Hámark ferðar Teresu var að koma að gröf elskhuga síns. Byron hafði verið neitað um greftrun í West- minster Abbey. Kista hans var því lögð við hlið móður hans í grafreit ættarinnar í litlu kirkjunni í Huck nall Torkard rétt hjá Newstead. Og nú, átta árum eftir greftrun Byrons, kom síðasta ástkona hans að legstaðnum í fylgd forvitinna blaðamanna. „Frúin fór alein inn í. kirkjuna," segir blað eitt. „Úr dyrunum, áður en þeim var lokað, sást hún leggj- ast niður á fánana, sem huldu leg- stað Byrons. Þarna dvaldist hún al ein inni í kirkjunni, meðan þjónn og fylgdarmaður beið útifyrir, hreint ekki skamma stund — klukkutíma eða meira, held ég.“ Þeir í London, sem þekkt höfðu Caroline Lamb og nú sáu Teresu, hlutu að verða hissa á því, hve keimlíkar þær voru í sjón. Byron var það raunar strax ljóst og hann skrifaði einum vina sinna: „Hún er nokkurs konar ítalskt afbrigði af Caroline Lamb, en hún er miklu fallegri og ekki eins villt. Hún hefur þetta sama heitrauða höfuð, sömu fyrirlitningu gagnvart áliti múgsins, með yfirbyggingu þá alla, sem Ítalía getur bætt við svo náttúrlega manngerð." Byron hafði því að vissu leyti byrjað og endað með Caroline Lamb. Þessi ítalska Caroline hans var fædd í Ravenna árið 1800. Svo sem hin efnilegasta af fimm dætr- um Gambas greifa, var Teresa upp alin í nýtízku klaustri, Santa Chi- ara í Faenza. Átján ára — með yfirbragð eftir- tektarverðrar, hraustrar, róslitaðr- ar, glaðlyndrar sveitastúlku — var hún neydd til hjúskapar með auð- ugum, rauðbirknum nærsýnum saurlífissegg — 57 ára gömlum greifa að nafni Alessandro Guicci- oli. Hún var þriðja konan hans. Þrem dögum eftir brúðkaupið sáust þau Byron og hún í fyrsta sinni. Hún var reyndar of þreytt, örmagna og taugaspennt til þess að geta orðið hrifin undir eins af nokkrum. En tæpu ári síðar sáust þau Byron aftur í veizlu í Feneyj- um, í apríl 1819. Og nú voru örlög hennar ráðin. Hjónaband hennar og greifans hafði reynzt sérlega ógæfu samt. Hún svaf ein í baðherbergi, ávarpaði eiginmanninn með signor titli og hafði komizt að raun um, að engir formlegir ástareiðar gátu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.