Úrval - 01.05.1978, Page 21

Úrval - 01.05.1978, Page 21
UNGÁ NÝMEÐ R UDOLFNUREJEV við minnsta grun um aðsteðjandi hættu. En þegar ég sagði eitthvað létt og kátlegt, hló hann, og glampinn hvarf. Seinna var ég viðstödd, þegar hann fór á fyrstu æfingu á nýju sólónni á leikhúsinu. Hann var spenntur og óstyrkur og endurtók hvert spor af svo ákafri einbeitingu, að hann gekk upp og niður af mæði. Ég var smeyk um, að hann kæmist aldrei í gegnum þessa löngu sóló, ef hann færi svona vandlega í hverja minnstu hreyfingu. En það var óþarfí að hafa áhyggjur. Þegar tjaldið var dregið frá, í fyrsta sinn sem hann kom fram í London, stóð hann á sviðinu í síðri, rauðri skikkju. Hann sveif fram sviðið, kastaði skikkjunni af sér og dans hans var heillandi frjáls og þróttmikill við ástríðufulla tónlist Scriabins. Margir lögðu táknrænan skilning í síðu, rauðu skikkjuna, sem huldi hann í upphafí. En hvort sem þeir höfðu rétt fyrir sér eða ekki — áhrifín voru stór- kostleg. Sama var að segja um túlkun Rudolfs í dúettinum úr „Svana- vatninu.” Eftir sýninguna hópaðist fólkið um hann utan við leikhúsið. Það var enginn vafí, að hann var , ,viðburður ársins. Forstjóri Konunglega ballettsins, Ninette de Volois, sagði mér fljótlega eftir þetta, að Rudolf ætti að dansa í „Giselle” í Covent Gardení febrúar. „Langar þig að dansa móti honum?” Að þessu sinni voru mín fyrstu M viðbrögð þau, að ég spurði: „Heldur þú ekki að ég sé of gömul? Það væri eins og rolla væri að dansa móti lambi.” En ég ræddi málið við Tító, og við komumst að þeirri niðurstöðu, að annað hvort yrði ég að drífa mig í þetta eða hneygja mig í kveðjuskyni. Við fyrstu æfinguna voru taugar okkar beggja stríðþandar. Þegar nýr dansfélagi kemur, verður alltaf að sverfa og slípa til þess að samstaða fáist í skilning beggja á túlkuninni. Venjulega gerir hver svo sem hann er vanur, þar til kemur að einhverju, sem hreinlega gengur ekki. Yfirleitt segir karlmaðurinn þá: „Hvernig ert þú vön að gera hér? Ég get farið eftir þér.” En Rudolf var ekki þannig. „Heldurðu ekki, að þetta væri betra svona?” spurði hann og vissi nákvæmlega hvað hann viidi. Við hófum langar umræður, sem enduðu með því, að hvort okkar breytti nokkrum sporum. Tveir tfmar liðu á svipstundu og hin óvænta hamingju- tilfínning af samvinnunni við hann hafði djúp áhrif á mig. Allir töldu að Rudolf væri óhaminn og léti stjórnast af geðhrifum. Hann var bóndasonur, alinn upp í afskekktu héraði í austur- hluta evrópska Rússlands og það hafði kostað hann langa og erfíða baráttu að komast að við Kírov-ball- ettinn. En þverstæðan, sem kom í ljós, var sú, að þessi ungi, frumstæði tatari var gersamlega heillaður af tækninni, meðan ég, hin kalda, breska dansmær, hafði miklu meiri
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.