Úrval - 01.05.1978, Side 61

Úrval - 01.05.1978, Side 61
59 VARSJÁ RÍS ÚR ÖSKUNNl Hljómlistarmenn ganga leikandi milli borðanna, og málarar bjóða myndir sinar. Umhverfis. torgið eru kaffihús og matsölustaðir, skartgripa- búðir, lyfjabúðir, listsýningahús og lítil söfn. Þetta er ákjósanlegur staður til að slaka á og til að hitta fólk. Aðrir hlutar gömlu borgarinnar eru rétt jafn ósviknir og aðlaðandi.en þegar búið var að ljúka endurbygg- ingunni, var enn nokkuð mikilvægt eftir — konungshöllin, sjálft tákn borgarinnar. Árið 1970 voru Lorentz, Zach- watowics og 30 aðrir fulltrúar menntastéttarinnar óvænt kallaðir á fund með Edward Gierek, þá nýkjörnum flokksritara Póllands. Hann bauð þeim að ríkið legði fram fjármagn til að endurreisa höllina, sem kommúnistaleiðtogar Póllands höfðu fram til þess tíma talið „leifar lénsskipulagsins.” Lorentz, sem bar ábyrgð á söfnum og minnismerkjum, afþakkaði tilboðið kurteislega. ,,Nei,” sagði hann. „Bjóddu okkur ekki peninga. Gefðu okkur aðeins leyfi, og við skipum nefnd til að sjá um fjármálahliðna.” Leyfíð var veitt, og í ársbyrjun 1971 skutu söfnunar- boxin afturupp kollinum. Höllin er nú næstum fullgerð. Uppbygging hennar ókst með framlagi þúsunda handverksmanna og fjártillagi pólverja heima og erlendis. Söfnunin skilaði hvorki meira né minna en 623 milljónum zloty (um 28,5 milljarðar íslenskra króna á núgildandi gengi). Hluti af höllinni hefur þegar við opnaður almenningi, og þess er vænst, að hægt verði að opna hana alla árið 1980. Að utan sjá gamlir Varsjár- borgarar engan mun á nýju höllinni og þeirri gömlu. Ut að torginu veit sama rauða múrsteinshliðin, vegg- irnir eru klæddir með samskonar ljós- rauðu gibsskrauti, og turninn er eins og hann var, ferkantaður og ramm- gerður gnæfír hann yfír gömlu borginni á aðra hlið en Wistafljóti á hina. Það er aðeina að innan, sem endurreisninni er ekki að fullu lokið. Komandi kynslóðir munu yfírleitt ekki geta séð, að sú borg, sem þær búa í, hafi verið lögð í rúst og síðan endurreist. Það verður óhjákvæmilegt að segja söguna eins og hún gekk til. Minningarnar um grimmd og eyðileggingu hinna skelfílegu ára voru táknrænt séð þurrkaðar út með sérlegri athöfn á hallartorginu 22. júlí 1947. Það var eins og háif Varsjárborg hefði safnast saman framan við þessa voldugu byggingu, sem gnæfði 1 nýrri tign yfír umhverfi sitt. Nákvæmlega klukkan 11.15 sló klukkan með stóru, gylltu vlsunum stundarfjórðunginn. Það var þessi tónn, sem Varsjá hafði beðið eftirí 35 ár. Og 1 þetta sinn leyfði Zachwa- towics sér að láta þau tár renna, sem hann hélt aftur af hinn 17. september 1939. ★
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.