Úrval - 01.05.1978, Side 125

Úrval - 01.05.1978, Side 125
LASER-GEISLAR TIL AUGNLÆKNINGA 123 mitt þetta tilfelli. Maður uppgötvar ekkert með afstæðum hugsunum. Það em aðeins örlög sjúklingsins, ákveðins sjúklings, og ákveðin hindr- un í veginum sem leiða til svefnleysis og hvetja mann áfram. ’ ’ ,,Og þegar þér bjugguð til eitt sjá- andi auga úr tveimur blindum, var það vegna þess að þér vilduð hjálpa manninum, eða vegna þess að þarna var möguleika á að fara algjörlega nýjaleið?” „Þetta var eina leiðin til að veita honum sjónina aftur. Þetta var eina lausnin sem mér datt í hug þá. Hann var með gláku á öðm auganu, en hitt var algjörlega óstarfhæft, nema hvað hægt var að nota augnhvítuna. Hún var tekin og sett yfir hitt augað, ofan á glákuna. Þetta var nauðsynlegt til þess að gróðursetja gegnsæja gerfi- hornhimnu á auganu, sem annars hefði ekki tekið á móti svo fjarskyld- um hlut. Eftir að gróðursetningin hafði borið árangur gátum við skorið op í varnarlag hvítunnar andspænis augasteininum. Og þá streymdi ljósið inn í augað um gerfihornhimnuna’ ’. Nú hefur þessi aðferð verið full- komnuð á Rannsóknarstofnuninni. Öðm hverju sér maður sjúklinga þar sem em með umbúðir á eyrunum. Brjóskbitar hafa verið teknir og gróð- ursettirí blindum augum þeirra. Þegar Krasnof hefur fundið upp nýja aðferð er hann fljótur að veita öðmm hlutdeild í henni. Hann gerir hana ekki að sinni einkaeign. Fyrst gerir hann nemendur sína og nánustu samstarfsmenn að þátttakendum, síð- an lækna frá öðmm sjúkrahúsum og stofnunum. Krasnof hafði engan áhuga á upp- götvunum í læknavísindum þegar hann var ungur. Hann ætlaði ekki einu sinni að verða læknir. I bernsku hafði hann mestan áhuga á rafeinda- fræði. Hann teiknaði og smíðaði út- varpstæki af eigin rammleik. Þetta kom honum að góðum notum síðar, þvx að skurðlæknir þarf ekki síður á handlagni og nákvæmum vinnu- brögðum að halda en útvarpsvirki. Rafeindafræðin er enn ríkur þáttur í lífi Krasnofs, enda er hann gæddur mjög fjölbreyttum hæfileikum. Hann tekur þátt í hönnun nýtískulegra tækja sem notuð em til augnlækn- inga. Notkun lasergeisla í augnlækning- um hefur vakið mikla athygli í sov- éskum fjölmiðlum. Tæki sem byggð em á þessari notkun em notuð við rannsóknarstofnun Krasnofs. Fyrir sjö ámm gekk Krasnof á fund V.A. Kir- illins, yfirmanns ríkisnefndar þeirrar er sér um vísindi og tækni. Hann bað um aðstoð til að skipuleggja algjör- lega nýja rannsóknarstofu þar sem laser-geislar yrðu notaðir til nýrra rannsókna. Aðstoðin var veitt og bestu fáanlegu vísindamenn fengnir til starfans. Á rannsóknarstofunni var komið fyrir smáu en mjög aflmiklu lasertæki. Það var sérhannað fyrir stofnunina af Nóbelsverðlaunahafan- um A. Prokhorof, sem átti þátt í að smíða fyrsta lasertæki í heimi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.