Víðförli - 01.11.1954, Page 18
16
VÍÐFÖRLI
gerðist eitthvað hlutlægt, raunverulegt. Þetta drama var
ekki aðeins sýning, ekki guðlegur leikur (lila), eins og Ind-
ver ar myndu e.t.v. telja eðlilegast að álíta. Það var saga,
sem Guð lifði í alvöru.
Þetta hafa fulltrúar s.n. hlutlægra friðþægingarkenninga
vili'að túlka. Þeir hafa viljað segja: Krossinn er ,virkilegur
viðburður í lífi sjálfs Guðs, sem skiptir þáttum að því er
varðar afstöðu hans til mannanna eða aðstöðu hans gagn-
vart þeim. Nánari útfærsla þessa sjónarmiðs hefur stund-
um verið vafasöm, en hin innri rök og tilætlun ótvm^tt í
sa",hljóðan við Nýja testamentið. Hér er tekið tillit til þess,
að krossinn afhjúpar tvær meginstaðreyndir tilverunnar:
Synd og náð, illsku og elsku. Og út frá meðvitundinni um
guðlegt baksvið viðburðarins er réttilega ályktað, að hér sé
ekki um píslarvætti að ræða, hér sé ekki aðeins brugðið upp
mynd af baráttu ills og góðs, heldur hafi náð Guðs bárizt
til úrslita við synd mannkyns, elska hans sigrað illskuna.
Þess vegna sé innbyrðis afstöðu Guðs og manns öðruvísi
háttað síðan en áður. Guð á annan aðgang að oss og vér
annan að honum. Mannkynið leiddi sekt sína í ljós með við-
ureign sinni við Guðs son. En hann tók sektina á sig. Því
getur hann nú sagt við hvert barn hins seka mannkyns, sem
eygir sekt sína: Syndir þínar eru fyrirgefnar, komið til
mín, það er fullkomnað. Jesús Kristur hefur nú vald til þess
að boða öllum heimi fyrirgefningu, bjóða öllu mannkyni
til sín, vegna þess að hann lét krossfestast. Pína hans og
dauði er ekki aðeins yfirlýsing frá Guðs hálfu um það, að
ekkert muni geta gjört oss viðskila við kærleika hans. Kross-
inn var óhjákvæmilegur til þess að vér yrðum ekki viðskila
við hann, til þess að sekt vor, hlutlæg, raunveruleg sekt,
stæði ekki milli vor og hans. Krossinn er sköpun nýrra