Víðförli - 01.11.1954, Side 84

Víðförli - 01.11.1954, Side 84
.82 VÍÐFÖRLI bölvun í blessun. Innra borð allrar framvindu er hjálpræð- issaga. Markmið allrar tilveru Guðs ríki. En víkjum aftur að formi sköpunarsögunnar. Það hefur valdið ærnu orðaskaki, að samkvæmt henni fullnast sköp- unarverkið á sex dögum. Nú vitum vér, að saga jarðar á óteljandi aldaþúsundir að baki og að aldur „himins“ verður engum tölum tjáður. Jafnvíst er hitt, að höfundur sköpunarsögunnar hefur verið alls ófróður um kenningar nútímavísinda um þessa hluti. Það er jafneinfalt mál og það, að hann hefur áreiðanlega aldrei séð útvarp eða bíl. Sú staðreynd, að þessi saga varð til löngu fyrir dögun raun- vísinda gæti því aðeins hnekkt gildi hennar, að henni hefði verið ætlað að kenna raunvísindi. En það var henni vissu- lega aldrei ætlað. Hún talar hvorki um jarðfræði, stjörnu- fræði né líffræði, ekki fremur en Lúther ætlar sér að kenna fósturfræði í fyrrgreindum ummælum sínum. En hvers vegna segir sköpunarsagan, að sköpun Guðs hafi algjörzt á sex dögum? Blátt áfram vegna þess, að höfundur hennar miðar við sjö daga vikuna. Fræðimenn hafa varpað fram þeirri til- gátu, að hann styðjist beinlínis við helgisiðaform sjö daga hátíðar, þar sem minnzt var dásemda sköpunarverksins og hver dagur var helgaður tilteknu atriði og tilgangurinn var að vegsama Guð og skoða dýrð hans í skuggsjá þeirra verka hans, sem maðurinn hefur fyrir augum og nýtur. Hvað sem þessari tilgátu líður, þá er það víst, að sjö daga vikan var Gyðingum þess tíma, sem líklegt er að sköpunarssagan í 1. Mós. 1—2,4 hafi fullmótast á, miklu helgari en vér gerum oss grein fyrir. Það var þeim eðlilegt að fella sköpunarverk- ið inn í umgjörð hennar og færa rök að helgi hennar eða skýra hana með því móti. En hornsteinn vikunnar og alls timatals var sabbatsdagurinn eða hvíldardagurinn, en hann
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.