Skírnir - 01.01.1876, Page 161
FBÁ FLOKKUM. FJÁRPRETTIR.
161
síSustu fimm ár minnkaS um næstum 50 milljónir dollara, og
lítiS því orði8 dregið úr ríkisskuldunum þann tíma. þær voru
nú um árslokin 2120 milljónir dollara, og sumar af þeim með
afarháum leigum. Stjórnin vildi því taka það til bragSs, að
fá nýtt lán (500 milljónir dollara) með þolanlegum rentum, og
borga með því verstu skuldirnar. Meðan öldungaráðið var að
bræða þetta, tók fulltrúaþingiS útgjaldalistann fyrir. þótti þeim
þar mörgu ábótavant og óljósir reikningar, og ýmisleg útgjöld
mega missa sig. þau urSu úrslitin, aS lýSvaldsmenn lækk-
uSu laun erlendra sendiherra Bandaríkjanna um þriSjung, og
kváSu þaraSauk 30 þeirra alveg óþarfa. Loksins var ráSizt á
laun rikisforsetans sjálfs; þau voru fyrir skömmu (1873) hækkuS
upp í 50 þúsundir dollara (úr 25), og þótti þá brýn nauSsyn til
bera, ef maSurinn ætti aS geta haldiS sig sæmilega. Nú kom
báSum þingdeildum saman um aS færa þau aptur niSur í 25
þús., en þó eigi meSan Grant sæti aS völdum. þaS var hvort-
tveggja, aS þetta atriBi var eitt af þeim fáu, sem samþykki náSu,
enda tók þá ekki betra viS, því aS Grant lagSi skýrt bann viS,
og kvaS hvorki neinum lifvænt meB þessum launum, er í forseta-
stöSu væri, né þjóSinni sæmandi slíkur nánasarskapur; þar viS
situr enn. Margar greinir urSu fleiri meS flokkunum útaf fjár-
lögunum, er oss þykir eigi þörf aS nefna, en geta heldur hins,
sem eru svik og fjárprettir embættismanna. Einsog orS lék
á áSur, hefir Grant eigi alstaSar veriS sem heppnastur í kjöri
embættismanna sinna, og svo margir prettir hafa komizt upp
árib sem leiS, jafnvel meBal æztu embættismannanna, aB undrum
þykir sæta, og eru þó Bandamenn eigi meS öllu óvanir slíku af
valdsmönnum sínum áSur.
MaBur er nefndur Belknap, og var hermálaráBgjafi hjá
Grant til skamms tíma. Snemma í marz gaus sá kvittur upp, aB
eigi væri allt meS feldi í stjórn hans á hermálunum og hann
myndi þaraSauk eigi vera laus viS að hafa þegiS mútur fyrir
embætti. Nefnd var óBara sett í máliS, og komst þá upp aS
hvorttveggja var satt. Fyrir nokkrum árum gerSi fyrri kona
Belknaps samning viS mann þann, er Marsh hét, og hét honum
embætti einu, sem var afar ábatasamt; áskildi hún sér um leiS
Sltírnir 1876.
11