Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Page 28

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Page 28
32 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS skiljanleg orð. Þó vantar þá ekki með öllu, þannig að ekki er hægt að ímynda sér texta sem sleppt hefði verið sérhljóðunum úr. Nú eru þess ýmis dæmi að rúnaristur séu „á dulmáli" sem fengið er til dæmis með því að rita stafinn á undan eða eftir þeim sem í raun stendur í orðinu.7 Eftir að hafa gefist upp á að fá vit út úr rúnunum eins og þær stóðu, reyndi ég því að setja næstu rún á eftir í rúna“stafrófmu“, fúþarkinum, í stað þeirra sem skrifaðir voru og þá hina næstu á undan. Ekki gaf það heldur skiljanlegan texta, og ekki fremur þó reynt væri með aðra rún á undan eða á eftir og þriðju á undan eða á eftir. Þá gat hugsast að sá, er rúnirnar skar, hefði haft stafaröðina í latnesku stafrófi í huga, þó hann skæri rúnir, og var því einnig reynt að víxla stöfum í stafrófinu á sama hátt. En engin af þessum aðferðum breytti stafarun- unni á rúnakeflinu frá Stóruborg í neitt sem hægt væri að lesa. Rúnaristu þessa hef ég sýnt eða sent ýmsum þeim er mér gat dottið í hug að kynnu að geta ráðið gátuna. Þá hefur verið birt teikning af áletruninni í rúnablaði, sem gefið er út í Noregi 8, en engin ráðning hefur þó borist enn. Reyndar hefur prófessor Jonna Louis-Jensen í Kaupmannahöfn bent mér á það (í bréfi dags. 21.8.1985) að stafaröðin KRHKAHIANI væri fengin með því að víxla stöfum í fuþarkinum á ákveðinn hátt. Röð rún- anna er venjulega höfð þessi: fuþork hnias tbmly. Þetta er „stafrófið" og gengur tíðum undir nafninu fuþark eða fuþork, eftir fyrstu stöfunum sex. Stafaröð eins og þá, sem er á annarri hlið rúnakeflisins frá Stóruborg, má fá með því að fara ýmist eitt stafabil afturábak eða tvö áfram í rúnaröðinni. Það er eins og byrjað hafi verið með því að rita rúnina k, síðan rituð næsta rún á undan, r, því næst sú þarnæsta á eftir r, það er að segja h. Síðan er rituð rúnin næst á undan h, það er k, og næst sú þarnæsta á eftir k, það er að segja n. Enn er nú farið eitt bil til baka og ritað h og síðan tvö áfram og ritað i, síðan aftur eitt til baka, n, og tvö áfram, a, eitt til baka, i. Hér er spýtan brotin uin staf sem gæti verið s. Með sömu aðferð hefði framhaldið orðið satsbtmblmyl. Ekki treysti ég mér til að giska á hvað rúnaristarinn hefði síðan gert, þegar komið var á enda rúnaraðarinnar. Ekki get ég heldur stungið upp á neinni skýringu á því, að byrjað var á rúninni k. Ólafur Halldórsson við Stofnun Árna Magnússonar skoðaði rúnaristuna einnig og var sammála Jonnu Louis-Jensen að á annarri hlið væri víxlað stöfum í rúnastafrófmu. 7. Aslak Liestöl, Magnús Már Lárusson: Lönskrift. Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder XI 146-149. Erik Moltke: Runerne i Danmark, bls. 104-105. 8. „Et nyfunn fra Island". Nytt om runer, nr. 1 1986, bls 6.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238
Page 239
Page 240
Page 241
Page 242
Page 243
Page 244

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.