Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 155
TVÖ HÚS VIÐ ÁTTAHRINGSVOG
159
þess, að þarna hefðu menn
verið að verki fyrir ekki æva-
löngu. Aðspurður sagði Gústaf
í Papey að hann hefði helst
haldið, að þarna hefði verið
hjallur. Sást þó við fyrstu
athugun 1971, að svo mundi
ekki hafa verið, því að greini-
lega vottaði fyrir veggjum á alla
vegu en laut eða skarð í á
suðurvegg, þar sem ætla mætti,
að verið hafi dyr (57. mynd).
Skoðunarhola var grafin ofan
í miðja tóftina 15. júlí 1981.
Kom þá strax í ljós, að inni í
57. tnynd. Uppdráttur af Áttahringsuogi I. - tóftinni var lag af rauðbleikri
Fig. 57. Plan of Áttahringsvogur 1. og svartri ösku um 45 sm fyrir
neðan grasrót. Augljóst var, að
þetta hlaut að vera gólf og að menn hefðu hafst þarna við með ein-
hverjum hætti. Þótti sýnt, að þetta þyrfti frekari athugunar við, og því
var daginn eftir, 16. júlí, grafinn 50 sm breiður krossskurður um þvera
og endilanga tóftina. Því miður stóð þannig á, að ekki var tími til frek-
ari rannsóknar, þar eð skip beið rannsóknarmannanna og átti að fara
sama kvöldið. Verður því að nægja sá fróðleikur, sem lesinn verður út
úr þessum skoðunarskurði.
f ljós kom, að þarna hafði staðið lítið hús, um 3,5 m á lengd að
innanmáli, nokkurnveginn frá austri til vesturs og um 2 m að breidd
(57. mynd). Veggjaþykkt hefur verið um 1 m og veggir mest úr torfi,
en þó steinar neðst. Dyr hafa verið á suðurhlið austarlega. Oskulag var
á gólfi, misþykkt, allt upp í 9 snr mest, en yfirleitt miklu þynnra. Við
norðurvegg voru steinar sem geta tilheyrt einhverskonar eldstæði. Frá
gólfi upp í grasrót var misþykkt moldarlag, frá 42 sm á miðju gólfi og
upp í 80 sm í suðausturhorni. Gólfinu hefur hallað allmikið frá vestri til
austurs.
Athyglisverðast við þessa tóft er, að innan veggja hennar vottar ekki
fyrir hvíta gjóskulaginu frá 1362 og yfirleitt var ekki tekið eftir neinu
gjóskulagi í fyllingunni. Hins vegar sást hvíta lagið vel utan veggja og
einnig í mýri rétt hjá tóftinni, þar sem snið var gert og mælt upp. Það
er því augljóst, að hús þetta hefur ekki staðið sem opin tóft árið 1362.
Hugsanlega hefði það getað verið uppistandandi þá, með þaki og öllu,