Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 224
228
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
nokkrir starfsmenn aðrir. Forvarzla, annarra gripa en textíla, fluttist um
stundarsakir upp á efstu hæð, þangað sem síðast var skrifstofa Lista-
safnsins. Þá var sett nýtt símakerfi urn húsið.
Síritandi raka- og hitamælar hafa nú verið settir víða í sýningarsölum
til að fylgjast með loftslaginu í húsinu.
Sett voru upp draghengi í Bogageymslu fyrir innramnraðar myndir
og ný fatahengi útbúin í anddyri.
Miklar endurbætur voru gerðar á þakhæð, hún einangruð og jafn-
framt lagt í mikinn kostnað við að þétta þakið þar sem lekið hafði. En
það verk var unnið að nokkru fyrir gýg og lekur enn og er hætt við,
að mikið verk verði að komast fyrir lekann. Mikið var flutt af gripum
úr geymslum vegna þessara endurbóta, sumt var flutt í Dugguvog en
öðru komið fyrir til bráðabirgða uppi á efstu hæð.
Hér má geta, að safnið fékk nokkurn styrk úr Frímerkjasjóði, sem
notaður var til að flokka, raða og skrá hið merkasta úr frímerkjaeign
safnsins. Unnu þeir Ólafur Elíasson verkfræðingur og Sigurður Gests-
son verzlunarmaður það verk.
Nefna má einnig, að utanríkisráðherra Búlgaríu, frú Galia Mlade-
mova, heimsótti safnið 30. maí og menningarmálaráðherra Finnlands,
Anna-Liisa Piipari, 22. júní. Dr. Vassos Lyssiarides forseti fulltrúa-
deildar þingsins á Kýpur kom í safnið 18. maí og Robert Adams
varaforstjóri Smithsonian Institution heimsótti safnið 3. júní.
Þjóðminjasafnsnefnd
Þjóðminjasafnsnefnd, sem gera á tillögur um framtíðarskipan safnsins
fram til næstu aldamóta, var endurskipulögð í október og aukið í henni
við tilkomu nýrrar ríkisstjórnar. Eru nú í henni alþingismennirnir
Guðrún Helgadóttir formaður, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Guð-
mundur G. Þórarinsson, Kjartan Jóhannsson og Óli Þ. Guðbjartsson,
Sverrir Hermannsson bankastj., Bryndís Sverrisdóttir safnkennari og
Lilja Árnadóttir deildarstj. Þjóðminjavörður starfar með nefndinni en
starfsmaður hennar er Hjörleifur Stefánsson arkitekt. — Sverrir sagði sig
síðar úr nefndinni.
Nefndin samdi frumvarp til þjóðminjalaga, sem lagt var fyrir Alþingi
um vorið, en þar sem allmargar athugasemdir bárust til Alþingis kom
í hlut hinnar nýju nefndar að semja nýtt frumvarp þar sem tillit var
tekið til breytingartillagna. Lagði síðan menntamálaráðherra hið nýja
frumvarp fram á Alþingi skömmu fyrir jól.