Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 150
154
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
n
i
i
51. mynd. Bollasteinn (P59), líklega Ijósakola. Ljósm.: H. Ásg. - Fig. 51. Stone with hollow
(P59), probably a lamp. Photo: H. Ásg.
veginn ferstrendur, mest 9,1 sm breiður og 8,35 sm þykkur. Á tveimur lang-
hliðum eru gamalnúnir fletir, nýlegt brotsár á einni og svo á endum, en á hinni
fjórðu langhlið, sem kalla má að snúi upp, er klöppuð sporöskjulöguð skál og
renna út úr hcnni við annan enda. Er far þetta spónlaga. Mætti hugsa sér, að
þetta sé ljósakola með skál fyrir lýsi og skarð fyrir rak. Steinn svipaður þessum,
en með dýpri holu, fannst við rannsókn jarðhúss á Hjálmsstöðum í Laugardal.
P60. Brýni úr dökkgráu, fínkornóttu og hörðu flögubergi (skifer), lítið brýnt, mcð
brotsár á báðum endum (52. mynd 1). 9 sm að lengd, nokkurn veginn þrístrent,
mesta breidd 3,5 sm, mesta þykkt 2,2 sm. Skora hefur verið sörguð í brotið um
þvert á einum stað og hefur líklega átt að brjóta það snyrtilega í tvennt, en vcrið
hætt við.
P61. Brýni úr mjög fínkornóttu, grábrúnu flögubergi, mætti kannski kalla það heinar-
brýni (52. mynd 2 ). 5,9 sm að lengd, 1,8 sm á breidd og 6-8,5 mm á þykkt.
Eins og málin sýna er það flatt, þunnt, og einnig mjög slétt. Annar endi er heill
52. mynd. Brýnisbrot (P60 - 66). Ljósm.: H. Ásg. - Fig 52. Whetstone fragments (P60 - 66).
Photo: H. Ásg.