Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 232
236
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
alabastursbríkina fornu, sem verður yfir altari þar til hin kemur og einnig
lánaði safnið og lét gera við ljósaplötur, sem áður voru við kórdyr en
voru nú settar á kórgafl. - Gert var við ýmsa aðra gripi kirkjunnar og
skraut í Morkinskinnu, róðukrossinn stóra og minningarmörk, sem
voru hreinsuð og lagfærð.
Kirkjan var síðan endurvígð 4. desember og flutti þjóðminjavörður
ávarp við það tækifæri. — Er kirkjan nú hin fegursta hið innra að allra
dómi og mun líkari því sem í öndverðu var, björt, stílhrein og sómir
sér afar vel. Að ári er svo hugmynd að gera við hana að utan og laga
umhverfi.
Möðruvallakirkja í Eyjafirði var tekin í notkun að nýju við hátíðar-
messu 13. nóvember eftir gagngera viðgerð eftir fokið 1972. Kirkjan
hefur fengið aftur alabastursbríkina fornu og er hún nú afar viðkunnan-
legt hús og merkilegt. Hún var reist 1848 að talið er eftir teikningu Þor-
steins á Skipalóni. — Gunnar Bjarnason sá lengst af um viðgerðina,
Sverrir Hermannsson þó síðustu árin undir leiðsögn Hjörleifs Stefáns-
sonar. Eftir er að smíða nýjar tröppur og lagfæra smávegis. - Áður er
getið viðgerðar klukknaportsins.
Miðdalskirkja í Laugardal var endurvígð 16. október eftir gagngera
viðgerð, sem unnin var undir umsjá Harðar Ágústssonar, en Húsafrið-
unarsjóður hefur styrkt viðgerðina verulega.
Þá var bókhlaðan ganrla í Flatey á Breiðafirði endurvígð við hátíðlega
athöfn 6. ágúst. Undanfarin ár hefur stofnunin Minjavernd annazt við-
gerð hússins, sem tekizt hefur með miklum ágætum. Bauð Minjavernd
allmörgum gestum til ferðar út í eyna af þessu tilefni og þótti öllum hér
hafa tekizt með hinunr mestu ágætum.
Á ferð þjóðminjavarðar, Lilju Árnadóttur deildarstjóra og Hjörleifs
Stefánssonar arkitekts um Austur- og Norðurland síðla sumars og fyrr
var getið, voru einkum skoðuð þau hús senr getið verður hér.
Skólahús á Herjólfsstöðum í Álftaveri, frá 1903, sem hefur lítt verið
notað undanfarin ár en áhugi er á að lagfæra og nota til samkomuhalds
sveitarbúa. Þar voru lögð á ráð unr viðgerð.
Stafafellskirkju, sem reist var 1866—68, er verið að gera við og annast
Halldór Sigurðsson tréskurðarnreistari frá Miðhúsunr verkið. Var
kirkjan klædd utan rekaviðarborðum og grind endurnýjuð eftir þörfum,
gluggar snríðaðir að nýju og grunnur hlaðinn á ný.
Samkomuhús í Lóni, steinsteypt árið 1912 en stækkað síðar, var
athugað, en áhugi er á að gera það upþ og nota á ný til samkomuhalds.
Þar var lengi framan af skóli byggðarinnar og nemendur í heimavist og
allar samkomur haldnar þar.