Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 138
142
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
slíku í tóftinni, enda algengt að sjá slíka steina í fornum rústum; menn hafa hirt
þá á götu sinni og ef til vill hafa börn haft þá að leikföngum.
P46. Smásteinar, 7 talsins, basalt, teknir sem sýnishorn, en miklu flciri áþekkir steinar
voru í tóftinni. Peir eru vatnsnúnir og reglulegir og hafa mcnn borið þá til húss
af þeim sökum. Einn er kringlóttur með náttúrulegu gati, annar aflangur og
mjög reglulegur. Kunna að hafa verið leikföng barna.
P47. Gjall, sem fannst við gólf innarlega (norðarlega), og kom sumt af því upp við
prófgröftinn 1967, en annað við rannsóknina 1969. Þetta eru smámolar og blend-
ingur af viðarkolum og rauða, en auk þess tvcir stórir gjallmolar, sá stærri 6,2
sm að lengd, sem lágu uppi á barmi gönrlu holunnar, sem Gunnar Gíslason gróf
forðum. Ekki cr alveg ljóst, að þeir hafi komið upp úr holunni, eða hvernig
samband þeirra er við rauðablástursleifarnar niðri við gólfið. Þær virðast vera
annars cðlis. Það virðist nrega álykta, að einhvers konar járniðja hafi verið borin
við þarna innst inni i húsinu. Safnað 5.9.1967 og 5.8.1969. Gjallið greindi J. G.
McDonncll við Department of the Environment-stofnunina í London sem
smíðagjall.
P48. Tveir stórir gjallklumpar, mest haf þess stærra 9,2 sm. Ekki tiltekið hvar nákvæm-
lega þcir fundust í tóftinni. Fannst 5.8.1969.
P49. Dýrabcin eða brot og agnir úr þeim sáust hér og hvar, en yfirleitt svo lítilfjörleg,
að ekki var hægt að hirða þau. Aðeins var hirt eitt brunnið bein.
P50. Viðarkol úr prufuskurði. Smáir nrolar og nokkur brennd bein. Safnað 15.9.1967.
Sent til aldursgreiningar í Svíþjóð (St 3605)." Greint sem birki. Annað sýni, St
3368, frá sama stað var einnig aldursgreint. Reyndist það vera rekaviður og gaf
þar af Iciðandi mjög háan aldur.
Lab. nr. Aldur í árum Leiðrétt skv. Stuiver & Pearson 1986
fyrir 1950. +— 1 o +— 2 a
St 3605 935 +- 100 BP cal AD 1000 - 1220 cal AD 890 - 1270
St 3368 1440 +- 100 BP cal AD 540 - 670 cal AD 410 - 780
P51. Viðarkol (birki) úr tóftinni. Sýni úr þessari tóft hefur þegar verið greint, St 3605.
Þetta eru allstórir molar.
P52. Tuö box með kolamolum í. Safnað 1.9.1971.
Aftur skal vikið að eðli þessa húss, til hvers það hafi verið byggt og
notað. Þegar húsið var að fullu rannsakað sumarið 1969, var ljóst,
hversu mjög það minnti á fjós, enda eru svo mörg íjós frá fornöld og
miðöldum kunn úr uppgröftum, að tiltæk er glögg vitneskja um
hvernig slík hús voru.12 Sóst var eftir að hafa fjós í halla, þannig að
11. Sýnið virðist hafa vcrið tekið úr gólfi í norðausturhelmingi tóftarinnar, í prufuskurði
þeim sem þar var gerður fyrsta sumarið sem rannsókn fór fram í Papey. Niðurstaða
aldursgreiningarinnar var scnd frá Svíþjóð 3.5.1971. Því miður reyndist ekki unnt að
staðsetja sýnið nákvæmlega.
12. Gott yfirlit um forn fjós er að finna í Gísli Gestsson, 1959, bls. 59-62. Sjá enn fremur
Kristján Eldjárn, 1959, bls. 400-401.