Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 71
RITAÐAR HEIMILDIR UM PAPA A ÍSLANDI
75
öðru til að dreifa en Landnámabókum. Elsta gerð Landnámu sem vitað
er með vissu að til hefur verið, er Styrnrisbók, sem Styrmir prestur
fróði ritaði á árunum 1222—1231, en á undan henni telja flestir fræði-
menn víst að til hafi verið Landnámabók, sem oft er kölluð Frumland-
náma. Þetta upphafsrit um landnám á íslandi má með gildum rökum
telja að verulegu leyti frá Ara runnið, þótt áþreifanlegar sannanir skorti.
Jón Jóhannesson sýndi fram á að í Styrmisbók hafi ckki verið þættir um
fund íslands. Bókin byrjaði að telja landnám við Jökulsá á Sólheima-
sandi, og síðan var haldið réttsælis kringum landið. Ef ályktun Jóns er
rétt, mun papafrásögnin ekki heldur hafa verið í Styrmisbók, og þar
sem sú bók styðst fyrst og fremst við Frumlandnámu, mætti ætla að
engin papafrásögn hefði verið í þeirri bók. Víst er þetta þó ekki, saman-
ber það, að kaflarnir um fund íslands eru ekki í íslendingabók, en þó
er þar papafrásögnin. En í rauninni skiptir þetta atriði ekki miklu máli
í því sambandi, sem hér um ræðir. Bæði Frumlandnáma sú, sem talið
er að hafi verið til, og Styrmisbók eru glataðar, og papafrásögnin er til
okkar komin í Landnámabókum aðeins í Sturlubók og Hauksbók.
Sturlubók ritaði Sturla Þórðarson einhvern tíma eftir miðja 13. öld, að
tali Jóns Jóhannessonar. Það var hann, sem fyrstur prjónaði landafunda-
kaflana framan við Landnámu, af því að hann ætlaði sér að semja sögu
íslands frá upphafi til enda. Þegar svo búið var að gera rökrétt grein
fyrir Ingólfi, fyrsta landnámsmanninum, lá beint við að halda frá
Reykjavík vestur um land, enda gerði Sturla það. Þessi efnisniðurröðun
Landnámu stafar því frá Sturlu.
Sturla byrjar bók sína á að leiða að því líkur, að ísland sé Tile, sem
Beda prestur segir frá. Síðan segir svo:
En áður ísland byggðist úr Nóregi, voru þar þeir menn, er Norð-
menn kalla papa, þeir voru menn kristnir, og hyggja menn, að þeir
hafi verið vestan um haf, því að fundust eftir þeim bækur írskar,
bjöllur og baglar og enn fleiri hlutir, þeir er það mátti skilja, að þeir
voru Vestmenn. Enn er og þess getið á bókum enskum, að í þann
tíma var farjð milli landanna.20
Fræðimenn munu vera sammála um, að það sem hér segir um papa,
sé að langmestu leyti tekið eftir íslendingabók, reyndar nær orðrétt.
Þaðan eru einnig þessi ummæli, sem koma nokkru síðar í Sturlubók:
20. ísl. fornrit I,, bls. 31-32.