Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 234
238
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Pjóðminjasafnið lánar í kirkjuna stól Skúla fógeta, sem þar var í önd-
verðu og hefur verið í kirkjunni nú síðan 1964. Einnig eftirlét safnið
Viðeyjarstofu tvær dragkistur frá árinu 1750 sem sagðar eru úr búi Skúla
fógeta í Viðey og keyptar voru á sínum tíma fyrir Viðeyjarfé.
Umræður urðu á árinu um fjölmörg merkileg hús og varðveizlu
þeirra, víða talað við eigendur eða þá sem hugsanlega gætu tekið að sér
varðveizlu og viðhald, en óvíða voru ákveðnar ákvarðanir teknar.
Hvarvetna um lönd er nú lögð mjög mikil og vaxandi áherzla á varð-
veizlu gamalla og merkra bygginga, ekki aðeins bygginga frá mið-
öldum eða fjarlægum tímum, heldur ekki síður frá síðari tímunr. Má
nefna, að á vegum Evrópuráðsins er nú verið að vinna að áætlun um
átak í varðveizlu hinna fyrstu stcinsteypuhúsa.
Forvörzludeild. Síðast á árinu fluttist Margrét Gísladóttir deildarstjóri
í nýútbúna vinnustofu á jarðhæð þar sem einnig var kornið fyrir þvotta-
aðstöðu, en slík aðstaða hafði engin verið lengi. Þá fluttist viðgerðar-
stofan að öðru leyti til bráðabirgða upp á aðra hæð hússins, en þar vinna
þær Halldóra Ásgeirsdóttir og Kristín H. Sigurðardóttir að viðgerð
Hólabríkur.
Margrét lauk viðgerð ytra byrðis hökulsins frá Hítardal, og síðan hóf
hún að hreinsa og gera við vefnaðarleifar, sem komu upp úr gröfum í
Hóladómkirkju. Einnig gerði hún við patínudúka úr byggðasafninu á
Selfossi og hóf að gera við hökul úr Þorlákshafnarkirkju hinni gömlu.
Halldóra og Kristín unnu mest að viðgerð Hólabríkur og er nú búið
að gera við mikinn hluta postulanna og skrautverkið úr vængjunum og
farið að gera við myndirnar úr miðhlutanum, sem er ekki eins illa far-
inn og vængirnir. Vann Ólafur Ingi Jónsson forvörður frá upphafi árs
og til ágústloka að viðgerð myndanna á vængjum bríkurinnar. Lucia
Coppi forvörður frá Ítalíu var honum til aðstoðar í hálfan annan mánuð
í upphafi ársins.
Þær Halldóra og Kristín fóru nokkrum sinnunr að Hólum vegna
niðurtöku kirkjugripanna og hreinsunar á legsteinum í gólfí og þær
hreinsuðu og styrktu minningarstein dóttur Sabinskys múrmeistara.
Þær veittu einnig ráðgjöf í Minjasafninu á Akureyri um geymslur og
lýsingu.
Þá voru tréhlutir, leður, keramík og steinhlutir frá rannsóknum síð-
ustu ára á Stóru-Borg forvarðir og Kristín lauk við að forverja vax-
töflur þær, sem fundust í Viðey á fyrra ári.
Nokkur tæki voru keypt til deildarinnar, svo sem stereosmásjá og
sandblásturstæki, hið síðarnefnda fyrir styrk úr Þjóðhátíðarsjóði.